Víðibrekka 1, 805
Fjarlægð/Seld - Eignin var 20 daga á skrá
Verð |
98,0
|
Stærð |
123
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
795
|
Skráð |
18.11.2022 |
Fjarlægt |
9.12.2022 |
Byggingarár |
2011 |
mbl.is |
|
Fasteignaland kynnir:
Víðibrekka, 805 Selfoss í landi Búrfells. Hitaveita, lokað svæði. Glæsilegt útsýni.
Fasteignaland kynnir: Glæsileg sumarhús í Víðibrekku í landi Búrfells í Grímsnes-og Grafningshreppi. Um er að ræða 123,3 fm sumarhús samkvæmt Þjóðskrá Íslands og var byggt árið 2011. Í þessu húsi er hitaveita, steypt plata með gólfhita. Lokað svæði með rafmagnshliði. Lóðin er 10.425 fm eignarlóð.
Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Fjögur herbergi með parketi á gólfi. Eitt með góðu skápaplássi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtu, frístandandi baðkari og hvítri innréttingu. Útgengi er af baðherbergi út á suður sólpall. Geymsla með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél. Stofan og eldhús eru í sama rými með góðri lofthæð. Stofan er með parketi á gólfi og útgengi á þremur stöðum, út á sólpall í vestur, suður og í austur. Eldhúsið er með parketi á gólfi. Fallegri hvítri viðarinnréttingu með vönduðum tækjum.
Þetta er glæsilegt sumarhús með fallegu útsýni. Stór og mikill sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.
Þetta er vandað hús og vel um gengið. Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er ca. kr. 30.000 á ári.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is