Verð | 91,9 |
Stærð | 118 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 777 |
Skráð | 8.11.2022 |
Fjarlægt | 9.12.2022 |
Byggingarár | 2022 |
mbl.is |
Allar nánari upplýsingar gefa: Árni Davíð Bergs, í síma: 625-2500 eða arni@miklaborg.is
Íbúðin er í sérflokki og var hvergi til sparað við hönnun og smíði hennar.
NÁNARI LÝSING: íbúð 106 er skráð 118.3 fm og skiptist í anddyri með fataskápum, rúmgott alrými með opnu eldhúsi, sjónvarpsrými, baðherbergi, þvottahús og þrjú góð svefnherbergi. Íbúðinni fylgir geymsla og stæði í bílakjallara.
Eldhúsið er opið við stofu. Sérsmíðuð innrétting og eldhúseyja úr reyktri eik frá Gili Creation og á borðplötum og á veggnum bak við vaskinn er fallegur kvartssteinn. Innfelld lýsing í innréttingu, undirlímdur vaskur, blöndunartæki frá Grohe og vönduð tæki frá Ormsson, þ.e. span helluborð, blástursofn, innbyggð uppþvottvél, innbyggður ísskápur og gufugleypir.
Stofa/borðstofa er í stóru opnu rými og er með gólfsíðum gluggum og útgengi á sólríka 7.1 fm verönd sem snýr til suðurs. Íbúðin snýr að fallegum inngarði hússins.
Baðherbergið er glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með stórum, ítölskum terrazzo flísum. Innréttingin er sérsmíðuð úr reyktri eik með kvartsstein á borðplötu og undirlímdum vaski. Sturtan er rúmgóð (walk-in) með blöndunartækjum frá Gröhe og reyklituðu sturtugleri sem nær alla leið upp í loft.
Þvottahús er með ítölskum flísum á gólfi og sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik. Ný og ónotuð þvottavél og þurrkari af vandaðri gerð frá Ormsson fylgir með í kaupum.
Svefnherbergin þrjú eru öll rúmgóð, með vönduðu vínilparketi á gólfum, sérsmíðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.
Bílastæði í bílakjallara merkt B15 og geymsla.
Hér er frábært tækifæri til að eignast glæsilega, nýja lúxusíbúð í ört vaxandi hverfi, miðsvæðis í Reykjavík. Ítölsk hönnun og glæsilegt yfirbragð einkennir íbúðina en allar innréttingar voru sérsmíðaðar af Gili Creation sem framleiddi m.a. innréttingar á 5 stjörnu hótelinu The Reykjavik EDITION. Þá var öll innanhússhönnun í höndum Ragnars Sigurðssonar, innanhússarkitekts.
Vogabyggðin er einn veðursælasti reitur borgarinnar, öll þjónusta er í göngufæri, stutt í stofnbrautir og svo er mikið af náttúruperlum í nágrenninu.
Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elín Alfreðsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 899-3090 eða elin@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í olafur@miklaborg.is
Árni Davíð Bergs, í síma: 625-2500 eða arni@miklaborg.is