Klapparstígur 5, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 74 daga á skrá
Verð |
64,8
|
Stærð |
107
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
607
|
Skráð |
13.2.2017 |
Fjarlægt |
28.4.2017 |
Byggingarár |
1992 |
mbl.is |
|
Remax fjörður kynnir: Í einkasölu mjög fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með svölum á fjórðu hæð í mjög vel staðsettu og vönduðu fjölbýlishúsi í miðborginni. Eigninni fylgja tvö stæði í bílgeymslu. Íbúðin er vönduð og vel um genginn og einnig er íbúðin öll nýmáluð. Íbúðin er mjög vel staðsett í húsinu, þannig að það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni.
Íbúðin er laus við kaupsamning.
Karl gefur frekari upplýsingar í síma 896-2822, eða netfang: karl.jonsson@simnet.is
Eignin skiptist í: Forstofa, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa, geymsla, þvottaherbergi, hjólageymsla, 2 sér bílastæði í bílgeymslu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofugangur: Flísalagður forstofugangur með fataskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með stórum fataskápum.
Svefnherbergi: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt, innrétting með stórum vaski, baðkar og nýr sturtuklefi.
Stofa: Mjög rúmgóð og björt flísalögð stofa. Úr stofunni er fallegt útsýni yfir sundin, Esjuna og tónlistarhúsið Hörpu.
Eldhús: Opið inn af stofu. Flísalagt með vönduðum innréttingum og granít borðplötu.
Svalir: Rúmgóðar svalir með glerlokun sem hægt er að opna.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er í kjallara með góðum hillum.
Bílgeymsla: Tvö merkt einkastæði í bílgeymslu.
Kjallari: Í kjallara er sameiginlegt þvottaherbergi með sér tenglum. Hillur og skolvaskur. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Húsvörður: Starfandi húsvörður er í húsinu og sér hann um allt smávægilegt viðhald.
Viðhald: eignin hefur verið í mjög góðu viðhaldi. Á sumrin starfar garðyrkjumaður við lóðina umhverfis húsaþyrpinguna og er lóðin mjög vel hirt og glæsileg, með fallegum blómakerjum, beðum, trjám og hellulögðum stéttum. Sameiginlegur leikvöllur fyrir börn er á lóðinni.
Hér er um að ræða mjög fallega og vandaða íbúð í mjög vel staðsettu fjölbýli þar sem stutt er í alla þjónustu í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar um eignina gefur Karl Jónsson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 896 2822, eða með tölvupósti: karl.jonsson@simnet.is