Heiðarhjalli 31, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 38 daga á skrá
Verð |
56,9
|
Stærð |
140
|
Tegund |
Hæðir |
Verð per fm |
407
|
Skráð |
29.8.2017 |
Fjarlægt |
6.10.2017 |
Byggingarár |
1995 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala kynnir virkilega glæsilega, bjarta og vel skipulagða 116,10 m2 4ra herbergja neðri sérhæð í fjórbýlishúsi með sérinngangi ásamt 23,6 m2 bílskúr við Heiðarhjalla 31 í Kópavogi. Samtals 139,7 m2. Fallegt útsýni er frá eigninni. Bókið skoðun í síma 822 2123.
Nánari lýsing.
Forstofa með flísum á gólfi og tvöföldum svörtum fataskáp með rennihurðum.
Hol með gegnheilu plankaparketi á gólf. Svartur fataskápur með rennihurðum.
Eldhús með flísum á gólfi og fallegri hvitri innréttingu með miklu skápaplássi með ljúflokunum á skúffum og glerflísum á milli skápa. Keramik Gram helluborð með Gram viftu yfir. Uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur fylgja með í kaupunum. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa með gegnheilu plankaparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar útsýnis svalir í suð-vestur með tréflísum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og máluðum flísum á veggjum. Baðkar með sturtu. Grá innrétting með ljúflokunum á skúffum. Opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergi með plankaparketi á gólfi og stórum fataskáp með rennihurðum.
Tvö barnaherbergi með plankaparketi á gólfi og og hvítum fataskápum.
Þvottahús með mosaik flísum á gólfi og lausum skáp sem fylgir með í kaupunum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottasnúrur og opnanlegur gluggi.
Bílskúrinn er 23,6 m2 með rafdrifnum opnara. Hiti og rafmagn. Nokkrar hillur.
2016 voru allir gluggar málaðir að utan og skipt um lamir á öllum gluggum. Sólargluggtjöldin eru frá Álnabæ. Þetta er virkilega skemmtileg eign sem vert er að skoða. Stutt er í alla almenna þjónustu eins og íþróttaiðkun - skóla og leikskóla. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is