Ennisbraut 2, 355

Fjarlægð/Seld - Eignin var 2232 daga á skrá

Verð 14,9
Stærð 167
Tegund Atv.
Verð per fm 89
Skráð 21.11.2013
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1932
mbl.is

167 fm. steinsteypt hús á tveimur hæðum byggt árið 1932. Í húsinu hefur til skamms tíma verið rekið gistiheimili en áður var í því íbúð, verslun og skrifstofa. Neðri hæð skiptist í sal, tvö herbergi, baðherbergi og kyndiklefa. Efri hæð skiptist í gang, eldhús, hol/stofu og fimm herbergi. Húsið er vel staðsett miðsvæðis í Ólafsvík og hentar staðurinn vel til reksturs gistiheimilis. Húsið þarfnast nokkurs viðhalds og þyrfti að skipta um a.m.k. tvo glugga á neðri hæð og klæðningu að utan. Seljandi eignaðist fasteign þessa á nauðungaruppboði/skuldaskilum og hefur aldrei búið í henni og getur því ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína. Leggur seljandi ríka áherslu á það við tilboðsgjafa að hann gætti sérstakrar árvekni við skoðun og úttekt á eigninni. Fletta í fasteignalista