Auðbrekka 16, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
68,7
|
Stærð |
123
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
557
|
Skráð |
9.8.2022 |
Fjarlægt |
19.8.2022 |
Byggingarár |
1967 |
mbl.is |
|
Lind fasteignasala og Sævar Bjarnason löggiltur fasteignasali kynna Auðbrekku 16, sem er 3 herbergja björt og falleg íbúð á efstu hæð á vel staðsettum stað í Kópavogi.
Birt stærð eignar er 123,4 fermetrar, merkt 03-01, fastanúmer 205-8791, skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og svölum.Næsta árs fasteignamat 68.700.000 kr.Nánari lýsing á eign:Inngangur er sameiginlegur með fyrstu og annari hæð. Fataskápur og fatahengi er fyrir framan á íbúð.
Eldhús er sameiginlegt setustofu og borðstofu og var endurnýjað 2017. Tækin eru frá Ormson setrinu og borðplata og veggir frá Mortex. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í eldhúsinnréttingu og uppþvottavél í fallegri innréttingu.
Búr er samhliða elhúsi og er það rúmgott með góðum hillum og smekklegri rennihurð.
Stofan er rúmgóð opin og björt með fallegu útsýni yfir Fossvoginn. Parket á gólfi.
Hjónaherbergið, er með fataskáp og parketlagt, útgengt er á suðursvalir.
Barnaherbergi er með fataskáp og parketlagt.
Baðherbergi er með nýlegri innréttingu, upphengdu salerni og sturtuklefa. Flísalagt að mestu en með plastparketi á gólfi að hluta.
Þvottahús er með góðri innréttingu er samhliða baðherbergi.
Stutt í alla þjónustu og göngufæri í Hamraborg, skóla og leikskóla og sundlaug. Hér er um eign sem vert er að skoða, eign sem er
staðsett í iðnaðarbyggð sem er að breytast í íbúðabyggð.Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veitir Sævar Bjarnason löggiltur fasteignasali, sími: 844-1965, saevar@fastlind.isUm skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld :Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. Stimilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.