Skyggnisbraut 2, 113

Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá

Verð 72,9
Stærð 110
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 663
Skráð 18.11.2023
Fjarlægt 1.12.2023
Byggingarár 2016
mbl.is

***DOMUSNOVA KYNNIR * FALLEG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ MIKLU ÚTSÝNI***
Mjög falleg og vel um gengin 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með glæsilegu útsýni við Skyggnisbraut 2 í Úlfarsárdal, Reykjavík.
Sér stæði merkt íbúðinni í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Birt stærð 109,9fm. 

Nánari lýsing: 
Forstofa
með góðum fataskáp.
Geymsla innaf forstofu er rúmgóð
Eldhús innaf forstofu með miklum skápum og glugga til suðurs.  Vönduð HTH viðarinnrétting með bakarofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni, helluborð með háf yfir. Eldhús og stofa í björtu alrými með glæsilegu útsýni.
Stofa innaf eldhúsi og útgengt á stórar svalir til suðurs með miklu útsýni.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með góðum fataskáp
Barnaherbergi l rúmgott með fataskáp
Barnaherbergi ll með fataskáp.
Baðherbergi með flísalagðri "walk-in"sturtu með hertu gleri.  Vönduð viðarinnrétting, upphengt salerni.
Þvottahús með hvítri innréttingu.  Flísalagt gólf.
Gólfefni íbúðarinnar er harðparket nema votrými eru flísalögð. 
Sér stæði í bílageymslu og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Laus fljótlega

Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson, löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27