Norðurbrú 1, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá
Verð |
87,9
|
Stærð |
125
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
703
|
Skráð |
1.7.2023 |
Fjarlægt |
7.7.2023 |
Byggingarár |
2004 |
mbl.is |
|
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Mjög björt og rúmgóð 3ja-4ra herbergja endaíbúð með stórum palli með hliði og sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu í Sjálandandshverfi Garðabæjar. Eignin er alls 125,1 fm. og þar af er sérgeymsla 8,9 fm. Gólfsíðir gluggar, eikarinnrétting, gott skápapláss og þvottaherbergi innan íbúðar. Göngufæri er í leik- og grunnskóla, baðströnd, Jónshús og veitingastað í hverfinu. Stutt er í Ásgarðslaug og verslanir, heilsugæslu, bókasafn og aðra helstu þjónustu á Garðatorgi. Fallegar gönguleiðir eru meðfram sjávarsíðuna og í Gálgahrauninu.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í GSM 844-6516 eða á ragnar@fstorg.is.***Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 90.550.000 kr. ***Nánari lýsing: Forstofa/anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og loftháum sexföldum sérsmíðuðum fataskápum frá Axis.
Eldhús: Eldhúsið er með eikarinnréttingu og loftháum skápum. Eyjan er með helluborði, góðu skúffuplássi og upphengdum stálháfi. Bakaraofn er í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi. Borðkrókur er í eldhúsinu.
Stofa/Borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru bjartar og samliggjandi. Eikarparket á gólfi og gólfsíðir gluggar. Útgengt er á pall með hliði og skjólvegg frá borðstofu. Pallurinn snýr til suðurs og vesturs.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Eikarinnrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi: Herbergin eru tvö en möguleiki er á því þriðja. Bæði herbergin eru rúmgóð með eikarparketi á gólfi og góðum loftháum fataskápum.
Sjónvarpshol/herbergi: Innan af svefnherbergisgangi er gott rými með glugga og eikarparketi á gólfi. Auðvelt væri að breyta rýminu í þriðja svefnherbergið eða vera með sjónvarpshol eins og núverandi eigendur.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar er þvottaherbergi með flísum á gólfi, skolvaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla og sérmerkt bílastæði: Í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni, sameiginleg hjóla og vagnageymsla ásamt sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu. ***
Búið er að samþykkja að setja upp lagnaleiða fyrir rafhleðslustöðvum í bílakjallara. Hússjóður á fyrir þeirri framkvæmd.***
Þetta er rúmgóð og björt eign á góðum stað við sjávarsíðuna í Garðabæ. Góðar gönguleiðir eru meðfram sjónum og í Gálgahrauninu. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, Jónshús, sundlaug Garðabæjar og alla aðra helstu þjónustu og verslanir á Garðatorgi. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í GSM 844-6516 eða ragnar@fstorg.is ***Eignin er hluti af dánarbúi og hafa núverandi eigendur ekki búið í eigninni.***Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.