Brókarstígur 9, 311

Fjarlægð/Seld - Eignin var 78 daga á skrá

Verð 40,0
Stærð 92
Tegund Sumarhús
Verð per fm 434
Skráð 30.8.2023
Fjarlægt 17.11.2023
Byggingarár 2022
mbl.is

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Um er að ræða glænýtt og ónotað sumarhús, 2022, í skipulagðri sumarhúsabyggð að Selborgum við Brókarvatn.

Um einstakt tækifæri er að ræða að eignast 92 fm og nýjan sumarbústað á góðu verði!

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit strax!

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi, þvottahús með gestasalerni ásamt alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu.

Sólpallur er á þrjá vegu við húsið og á honum er rafmagnspottur ásamt saunatunnu.

Húsið afhendist fullbúið með öllu innbúi og tækjum sem sýnt er við skoðun hússins.

Neysluvatn er úr varmadælu og húsið er kynnt með nútíma rafmagnsofnum.

Eignin er á lokuðu sumarhúsasvæði og er þar símahlið til að komast inn á svæðið. 

Nánar um eignina:
  • Komið er inn í andyri og þaðan er fallegur tréstigi með handriði upp á rúmgott svefnloft sem er með góðum glugga með flóttaleið.
  • Á svefnherbergisgangi er þvottahús sem útbúið er með gestasalerni, vask í skápaeiningu, spegli, handklæðaofni ásamt þvottavél og þurrkara, vinylflísar á gólfi.
  • Hjónaherbergið er útbúið með tvíbreiðu rúmi, viðar rúmgafli, hillum og fataskáp.
  • Seinna svefnherbergið á jarðhæð er einnig með tvíbreiðu rúmi, rúmgafli og kommóðu.
  • Baðherbergið er einkar smekklegt, vínylflísar á gólfi, baðplötum á veggjum, baðkari, upphengdu klósetti, vaski á skápaeiningu og sturtuklefa.
  • Alrýmið er mjög bjart, gluggar á þrjá vegu, svalahurð út á pall, hækkuð lofthæð og rúmast stofa/borðstofa og eldhús vel á þessu svæði.
  • Stofan er útbúin með sjónvarpi, skenk, sófaborðum, sófa og tveimur stólum.
  • Borstofan er með stóru fallegu viðarborði og sex stólum.
  • Eldhúsið er með rúmgóðri L innréttingu, efri og neðri hirslum, góðu vinnurými á bekk og vaski. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn fylgir allt með húsinu.
  • Úti við inngang hússins er góð geymsla þar sem allar stofnlagnir koma inn, rafmagn og vatn.
  • Stór rafmagns heitapottur er við inngang hússins ásamt saunatunnu.
  • Lóðin er gróin birkitrjám, gott bílastæði er við húsið og aðkoman öll hin snyrtilegasta. 
  • Húsið er með harðparketi á öllum gólfum utan víniyflísa sem eru á votrýmum.
Sumarhúsafélagið Selborgir er með árgjald upp á 12.000 kr á ári og er einnig vatnsgjald fyrir kaldavatnsnotkun 20.000 kr á ári.

Brókarvatn er um 10 km frá Borgarnesi þar sem alla þjónustu má fá, matvöru- og aðrar verslanir, lögregla, slökkvilið og sjúkrahús ásamt allri íþróttaaðstöðu, sundlaug og golfvöllur.

Eiginleikar: LEIGULAND, INNBÚ FYLGIR, HEITUR POTTUR, SVEFNLOFT, ÚTSÝNI YFIR VATN, VEIÐI, GUFUBAÐ, TIMBURHÚS

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899-0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35