Drómundarvogur 2 (409), 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 91,9
Stærð 112
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 817
Skráð 18.10.2022
Fjarlægt 19.10.2022
Byggingarár
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

ÞG Verk og Eignamiðlun kynna til sölu glæsilegar nýjar íbúðir að Drómundarvogi 2 í Vogabyggð. 
* Stærð íbúða eru frá 80,2 til 116,9 fermetrar.
* Lyftuhús.
* Stæði í bílakjallara fylgja íbúðum auk sérgeymsla.
* Svalir eða sérafnotareitur fylgja íbúðum.
* Miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
* Steinsnar frá frábæru útivistarsvæði. 

Allar nánari upplýsingar veitir: Ragnhildur í síma: 8611197, ragnhildur@eignamidlun.is 
*** Við sýnum samdægurs.***


Íbúð 409 er vel skipulögð og björt 112,5 fm 3ja herbergja á 4. hæð ásamt svölum og stæði í bílageymslu.
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 251-1092, nánar tiltekið eign merkt 04-09.  Ibúðin er skráð  96 fm og sérgeymsla í sameign merkt er skráð 16 fm. Eigninni fylgir bílastæði í bílageymslu merkt B1-63. Birt heildarstærð 112.5 fm. Svalir eru til suðurs og eru skráðar 5,5 fm. 
Eignin skiptist í:Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, 1 stofu, eldhús og 1 baðherb.Íbúð 409 er rúmgóð 112,5 fm 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð með 5,5 fm suðursvölum. 

Innréttingar í Drómundarvogi 2: Innréttingar í eldhúsi og á baði eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Nobilia er með framleiðslu í einni fullkomnustu innréttingaverksmiðju í heiminum í dag og framleiðir innréttingar eftirströngum gæðakröfum. Innréttingarnar eru með ljúflokun á skúffum og skápum. Skápahurðir eldhúsa eru með dökkri viðaráferð (hnota frá GKS). Lýsing er undir efriskápum í eldhúsum. Borðplötur eru úr efni sem er slitsterkt og endingargott, með vönduðum kantlímingum sambræddum með laser tækni. Eldhús skilast með tækjum og búnaði frá Electrolux, span-helluborði, blástursofni, uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. Viftur eru ýmist í efri skáp, nema þar sem eru vegg eða eyjuháfar en allar afhentar með kolasíu. Neðri skápar á baði eru með skúffu, efri skápar eru með spegli. Fataskápar eru eins og skápahurðir eldhúsa.

* Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
* Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu.
* Seljandi hefur heimild til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf en þó án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. 
* Ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga þá eru innréttingateikningar þær sem gilda og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
* Eignin afhendist samkvæmt meðfylgjandi skilalýsingu og er áætluð afhending okt/nóv 2022 með þeim fyrirvara að öryggisúttekt sé komin á húsið. 

Verktakinn er ÞG-Verk sem hefur yfir 20 ára reynslu og hefur frá 1998 byggt þúsundir íbúða fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins. Meginmarkmið ÞG-verk er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins: www.tgverk.is/vogabyggd/
Vogabyggðin er á frábærum stað hvað samgöngur varðar. Má segja að þarna við Elliðaárósana séu krossgötur höfuðborgarsvæðisins umferðarlega séð þar sem Sæbraut, Miklabraut, Vesturlandsvegur og Reykjanesbraut mætast. Íbúar eru því fljótir að komast út á þessar helstu umferðaræðar. Almenningssamgöngur eru líka góðar, Strætó stoppar rétt hjá á Sæbrautinni og áætlað er að Borgarlínan komi til með að liggja rétt hjá Vogabyggðinni.

Nánari upplýsingar veita:
Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir sími 861-1197, ragnhildur@eignamidlun.is
Herdis V. Hölludóttir lögg fs sími 694-6166, herdis@eignamidlun.is
Brynjar Þór Sumarliðason sími 896-1168, brynjar@eignamidlun.is
Bjarni T.Jónsson lögg fs sími 895-9120, bjarni@eignamidlun.is



 

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4