Birkiteigur 6, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
33,9
|
Stærð |
77
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
438
|
Skráð |
29.11.2022 |
Fjarlægt |
9.12.2022 |
Byggingarár |
1982 |
mbl.is |
|
Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu snyrtilega 2-3 herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýlishúsi við Birkiteig 6 í Keflavík.
***Eignin er laus við kaupsamning***
*Íbúðin er 59,6 fm en henni fylgir stórt 12,1 fm herbergi í kjallara ásamt 5,7 fm geymslu samtals 77,4 fm.
*Húsið stendur á eignarlóð
*Eignin er laus við kaupsamningNánari lýsing:Eldhús með snyrtilegri innréttingu en þar er helluborð og bakaraofn.
Ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með eigninni.
Þvottahús er flísalagt, gengið inn af eldhúsi í þvottahús og hefur glugga.
Stofan er björt, útgengt á suðursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtuklefa. Baðherbergið er flísalagt.
*Parket í íbúðinni endurnýjað 2020
*Flísar á baðherbergi og þvottahúsi endurnýjaðar 2021
*Innréttingar á baðherbergi endurnýjaðar 2021
*Eldhús innrétting endurnýjuð 2020Góð íbúð ásamt stóru herbergi (12,1 fm) í kjallara. Einnig er sér 5,7 fm geymsla sem fylgir íbúðinni í kjallara.
Snyrtileg eign sem er í göngufæri frá miðbæ Keflavíkur, leikskóla og grunnskóla.Allar nánari upplýsingar veitir:Magnús Þórir MatthíassonAðstoðarm.fasteignasala
S. 895-1427 eða 420-4000
magnus@studlaberg.is
Guðlaugur H. GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali
S. 420-4000
laugi@studlaberg.is
------------------------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.