Brautarholt 6, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 76 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
1.060
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
|
Skráð |
16.11.2021 |
Fjarlægt |
1.2.2022 |
Byggingarár |
1958 |
mbl.is |
|
Ríkiskaup óska eftir tilboðum í 1. og 2. hæð í eigninni við Brautarholt 6, 105 Reykjavík, fastanúmer 201-0532 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 1059,8 m2.
Eignin verður sýnd kl. 15:00, þriðjudaginn 23. nóvember n.k. Grímuskylda. Skv. reglum Ríkiskaupa um lágmarks auglýsingartíma verða tilboð í eignina ekki opnuð fyrr en mánudaginn 29. nóvember 2021, kl. 13:00.
Eignin skiptist í 338,5 m2 skrifstofur/lager á jarðhæð ásamt 332,8 m
2 lager í bakhúsi og 338,5 m2 skrifstofu/lager á 2. hæð. Um er að ræða fyrrum lagerhúsnæði Þjóðskjalasafns Íslands.
Húsnæðið er í heild 4 hæðir. Á 3. og 4. hæð er verið að útbúa íbúðahúsnæði en þær hæðir eru ekki hluti af þessari sölu.
Að framanverðu fyrir miðju er gengið er inn í sameiginlegan, bjartan og rúmgóðan, stigagang sem hefur verið lagfærður. Lyfta er í stigagangi en hún er biluð.
Jarðhæðin er 671,3 m
2. Fremri hlutinn og sá hluti er snýr að götu er um 340 m
2 og skiptist í sameiginlegt anddyri, skrifstofur, eldhús, salerni og skjalageymsla. Inn af því og sem snýr að baklóð eru tveir lagersalir, annar minni. Úr stærri salnum er aksturshurð út í port á bak við húsið. Hægt er að keyra inn í portið frá Brautarholtinu um akstursop sem er um 3m x 3m á hæð og breidd. Aukin lofthæð er á jarðhæðinni.
Lyfta er í húsinu sem þarfnast viðgerðar. Stefnt er að viðgerð á næstu vikum.
Önnur hæðin um 338,5 m
2 skiptist í skrifstofur, salerni og geymslurými
Eignin er vel staðsett í nálægð við miðbæinn. Stutt er alla verslun og þjónustu. Mikil uppbygging á verslun, íbúðarhúsnæði og þjónustu er í hverfinu.
Eignin þarfnast verulegra endurbóta og mælir seljandi með að kaupandi fái fagaðila með sér við skoðun.Tilboðum í eignina er hægt að skila
HÉRFyrirspurnir er hægt að senda á fasteignir@rikiskaup.is
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir Ríkiskaup allan nauðsynlegan aðgang til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.