Korngarðar 2, 104
Fjarlægð/Seld - Eignin var 172 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
3.230
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
|
Skráð |
29.3.2021 |
Fjarlægt |
17.9.2021 |
Byggingarár |
2000 |
mbl.is |
|
Atvinnueign kynnir í einkasölu heildareignina við Korngarða 2, 104 Reykjavík, samtals 3.230,5 fm skrifstofu - þjónustuhúsnæði.Leiga á húsnæðinu að hluta eða í heild kemur einnig til greina.
Um er að ræða 3.230,5 fm húseign á 5.075 fm lóð við Korngarða 2. Húsnæðið er steypt og álklætt og skiptist í tvær samliggjandi skrifstofubyggingar á tveim hæðum, jarðhæðin er 1.623,7 fm og önnur hæðin er 1.456,3 fm., tæknirýmið er 150,5 fm. Húsnæðið er vandað í alla staði, margar stærðir af skrifstofum og fundarherbergjum, kynjaskipt salerni og sturtuaðstaða er til staðar. Kerfisloft með lýsingu er í loftum. Rúmgott mötuneyti er á 2. hæð. Á gólfum er steinteppi og dúkur, flísar á votrýmum. Útgengi er á þakgarð sem er í miðju húsinu.
Lóðin fyrir framan húsið er malbikuð og vel frá gengin, fjöldi bílastæða eru við húsið. Margir inngangar eru í húsið og er lyfta til staðar.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:Halldór Már Sverrisson löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma
898-5599 eða
halldor@atvinnueign.is Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf, www.atvinnueign.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er 2.500 kr. af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu 69.900 kr.
-Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð 15.000 kr.
-Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Atvinnueign á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
- Atvinnueignir eru okkar fag -