Kirkjusandur 1, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
87,9
|
Stærð |
107
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
824
|
Skráð |
2.1.2024 |
Fjarlægt |
12.1.2024 |
Byggingarár |
1996 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg 3ja herbergja 103,1 m2 endaíbúð á 5.hæð í einstaklega vel staðsettu lyftuhúsi ásamt tveimur stæðum í bílageymslu við Kirkjusand 1, 105 Reykjavík. Eignin getur verið laus við kaupsamning. Yfirbyggðar svalir. Glæsilegt sjávarútsýni. Líkamsræktarherbergi og púttvöllur fylgja húsinu. Húsvörður í húsinu.
Bókið skoðun hjá Þórarni lögg fasteignasala í síma 8991882 eða thorarinn@eignamidlun.isEignin
er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 223-1203, nánar tiltekið eign merkt 05-01. Ibúðin er skráð 97,5 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-19 er skráð 5,6 fm. Birt heildarstærð 103.1 fm. Eigninni fylgja tvö stæði í bílageymslu merkt 1 og 53. Svalir eru yfirbyggðar til suðurs
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Eignin skiptist í: Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, stofu og borðstofu, eldhús og baðherb.
Þrjár íbúðir eru á hæðinni og er lokað sameiginlegt hol fyrir framan þær ásamt sameiginlegu þvottahúsi á stigapalli fyrir neðan, þar sem hver er með sína vél.
Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð og einnig er sameiginleg líkamsræktaraðstaða í næsta húsi. Húsvörður er starfandi við Kirkjusand 1 - 5 og er eignarhlutur hverrar íbúðar í húsvarðaríbúð í samræmi við eignarhlut í lóð. Púttvöllur er á lóð aftan við húsið. Stutt í alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum og parketi á gólfi.
Geymsla: Geymsla/búr innan íbúðar er með hillum á veggjum og parketi á gólfi.
Eldhús: Rúmgóð innrétting með ofni í vinnuhæð, steinn á borðum, flísar á milli skápa og parket á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa með sjávarútsýni og parketi á gólfi.
Stofa: Rúmgóð stofa og sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.
Svalir: Útgengt frá stofu á yfirbyggðar svalir með viðarklæðningu á gólfi.
Baðherbergi: Baðkar og sturtuklefi, rúmgóðar innréttingar. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Herbergi: Fataskápur og parket á gólfi.
Tvö bílastæði í bílakjallara fylgja íbúðinni annarsvegar stæði nr 1 þar sem komin er hleðslustöð og stæði nr. 53.
Í sameign er ágæt sérgeymsla fyrir íbúðina og svo er ein stór sameiginleg geymsla þar sem íbúðin á einfaldar geymsluhillur.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook