Skipholt 50A, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá
Verð |
48,9
|
Stærð |
107
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
458
|
Skráð |
1.10.2019 |
Fjarlægt |
11.10.2019 |
Byggingarár |
1985 |
mbl.is |
|
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX Senter kynna í einkasölu: Vel skipulögð 106,7 fm þriggja herbergja íbúð með sér þvottahús og geymslu innan íbúðar. Tvö svefnherbergi, opin stofa, borðstofa og eldhús með útgengi út á svalir sem snúa suð-vestur.
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur inn um snyrtilega sameign.
Forstofa er með harðparket á gólfi og hvítum fataskápum.
Tvö svefnherbergi, bæði með fataskáp og viðarparket á gólfi.
Eldhús er opið inn í borðstofu og eldhús með útgengi út á svalir sem snúa í suð-vestur. Harðparket á gólfi.
Hvít L-laga eldhúsinnrétting er með bæði efri og neðri skápa, helluborði, bökunarofni og viftu
Stofa og borðstofa er bjart og rúmgott opið rými.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum, baðkar, upphengt salerni, hvít innrétting með handlaug og spegil þar fyrir ofan.
Sér þvottahús er innan íbúðar með flísalagt gólf, dökkar flísar og skolvaskur.
Sér geymsla er innan íbúðar. Harðparket á gólfi.
Allar nánari upplýsingar gefur Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli í sima 661-6056 eða gulli@remax.is - B.A. lögfræði - Löggiltur fasteignasali.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.-