Lautasmári 53, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá

Verð 54,9
Stærð 108
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 509
Skráð 30.7.2020
Fjarlægt 3.9.2020
Byggingarár 1993
mbl.is

Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 5 herbergja 107,9 fermetra íbúð á 1. hæð í góðu steinsteyptu fjórbýli á vinsælum stað við Lautasmára í Kópavogi. Íbúðin er með gluggum á þrjá vegu og vestursvölum. Öll fjögur herbergin eru rúmgóð. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla verslun og þjónustu, íþróttasvæði, skóla og fallegar hjóla- / gönguleiðir.


Lýsing eignar:
Forstofa/hol: Með parketi á gólfi og góðum skápum á heilan vegg með rennihurðum.
Stofa: Er stór með parketi á gólfi. Stofa rúmar vel setu- og borðstofu. Gluggar til vesturs og útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til vesturs með útgengi úr stofu.
Eldhús: Með parketi á gólfi og fallegri hvít/beyki eldhúsinnréttingu. Flísar á milli skápa. Stál bakaraofn, keramik helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur og gluggi til vesturs.
Gangur: Með parketi á gólfi og glugga til norðurs.
Svefnherbergi I: Með plastparketi á gólfi, glugga til vesturs og skápum.
Svefnherbergi II: Með plastparketi á gólfi, glugga til vesturs og skápum.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara og glugga til austurs.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, góðum skápum á heilan vegg og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með plastparketi á gólfi og glugga til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtutækjum og glerþili, skápar, upphengt salerni og glugga til norðurs.
 
Sameign: Teppalagður stigagangur. Flísar á sameiginlegri forstofu á jarðhæð. Gluggar til austurs.
Hjóla- og vagnageymsla: Með útgengi á framlóð og gluggum til austurs.
Sérgeymsla: Er staðsett í kjallara. U.þ.b. 4 fm á stærð með máluðu gólfi.

Lóðin: Er frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og tyrfðri baklóð. Sameiginleg malbikuð stæði á lóð.

Um er að ræða frábæra staðsetningu í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla verslun / þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, samgöngur og stofnæðar. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24