Lyngás 1C, 116
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá
Verð |
53,0
|
Stærð |
128
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
414
|
Skráð |
8.4.2016 |
Fjarlægt |
9.4.2016 |
Byggingarár |
2015 |
mbl.is |
|
Opið hús að Lyngás 1c Garðabæ mánudaginn 11. apríl milli kl. 17:30 og 18:00 Miklaborg kynnir: Ný glæsileg 5 herbergja penthouse íbúð við Lyngás 1C í Garðabæ. Um er að ræða einu eignina á hæðinni og er víðáttumikið útsýni frá íbúðinni. Fjögur svefnherbergi, tvennar svalir (þar af einar stórar). Skráð stærð er 128 fm og fylgir stórt stæði í bílageymslu. Íbúðin er fullbúin án hluta gólfefna. Afhending er strax.
Gengið er inn í íbúðina frá svölum úr stigahúsi en glerlokun er fyrir framan íbúðirnar sem skýlir inngöngum gegn veðri og vindum. ATH. eina íbúðin á hæðinni! Eignin skiptist í forstofu með tvöföldum skápum. Fjögur svefnherbergi öll með skápum, hægt er að stækka stofurými með því að taka niður eitt herbergi. Björt stofa með tvennum svölum útaf. Hvít U-laga eldhúsinnrétting, helluborð, bökunarofn og gufugleypir frá Electrolux. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuaðstaða í baðkari, upphengt salerni og góð innrétting. Þvottahús er með flísalögðu gólfi, vinnuborði og skolvask. Allar innréttingar eru hvítar frá HTH Bræðurnir Ormsson. Innihurðir hvítar frá Birgisson. Hreinlætistæki frá Tengi. Skilalýsing byggingaraðila liggur á skrifstofu Mikluborgar varðandi frágang utanhúss.
Sérinngangur af svalagangi en þar sem þetta er eina íbúðin á efstu hæðinni nýtast rúmgóðar stigapalls svalir við inngang íbúðar. Sér stæði í bílageymslu og er stæðið sérstaklega stórt. Sérgeymsla í sameign 8,0 fm við inngang í bílageymslu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Eignin er á byggingarstigi 4 en lokaúttekt á húsinu verður á næstu dögum.
Mannverk sem er byggingaraðili hússins er þekkt fyrir góð vinnubrögð.
Afar glæsileg og nýtískuleg 5 herbergja íbúð á góðum stað í Garðabæ.
Sýningu á eigninni annast Svan Gunnar Guðlaugsson sölumaður og nemi til löggildingar fasteignasala í
sími 697 9300 eða
Óskar Harðarson löggiltur fasteignasali í síma 5697000 eða oskar@miklaborg.is,