Sólvallagata 27, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 47 daga á skrá
Verð |
45,9
|
Stærð |
95
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
483
|
Skráð |
25.5.2017 |
Fjarlægt |
11.7.2017 |
Byggingarár |
1955 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun ehf kynnir eignina Sólvallagata 27, mjög góð og einstaklega björt og opin 4ra herb. 95 fm íbúð á 3.hæð á besta stað í Vesturbænum. Tvennar svalir með mikið útsýni. Nýlegt baðherbergi, endurnýjuð gólfefni. Tvö svefnherb og tvær saml. stofur, með góðum möguleika á þriðja herberginu.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-2379, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01, birt stærð 95.1 fm þar af er íbúðin skráðir 88,8 fm og sérgeymsla í kjallara merkt 01-00-06 er skráð 6,3 fm.
Nánari lýsing: Snyrtilegur og rúmgóður sameiginlegur stigagangur teppalagður. Íbúðin er hol, opið yfir í tvær stofur (teiknað sem stofa og eitt svefnherb). Gengið út á svalir í suður með miklu útsýni, jafnframt mikið útsýni út frá stofu. Svefnherbergi með parketi. Barnaherbergi með parketi. Eldhús með eldri innréttingu og gengið út á svalir, ekta góðar grillsvalir. Nýlegt flísalagt og rúmgott baðherbergi, baðkar, innrétting og tengi fyrir þvottavél. Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús. Gengið út í bakgarð þar sem er góð ný sameiginleg timburverönd. Frábær staðsetning í grónu hverfi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson lögg.fs. Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is.
Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook