Norðurhóp 19, 240
Fjarlægð/Seld - Eignin var 25 daga á skrá
Verð |
80,9
|
Stærð |
166
|
Tegund |
RaðPar |
Verð per fm |
486
|
Skráð |
30.10.2022 |
Fjarlægt |
25.11.2022 |
Byggingarár |
2013 |
mbl.is |
|
Lind fasteignasala og Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali, kynna: Norðurhóp 19, 240 Grindavík.
Vönduð eign! Endaraðhús í Grindavík!
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit strax
Um er að ræða sérstaklega fallegt raðhús, byggt 2013, á einni hæð með góðum bílskúr. Húsið samanstendur af forstofu, opnu rými með eldhúsi/borðstofu/stofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og góðum bílskúr. Birt stærð séreignar skv. Þjóðskrá Íslands er 166,5 fm alls.
Allar innréttingar í húsinu er vandaðar og sérsmíðaðar, fallegt parket á flestum gólfum, baðherbergi og forstofa með flísum, þvottahús og bílskúr með epoxy á gólfum. Flest allir gluggar eru gólfsíðir og verandir að framan og bakvið húsið eru steyptar.Nánari lýsing:Komið er að húsinu sem er
endaraðhús með steyptu bílaplani fyrir framan inngang og bílskúr.
Forstofan er rúmgóð með stórum fataskáp og dökkum flísum á gólfi. Komið er inn í opna rýmið sem hýsir
eldhúsið, borðstofuna og stofuna. Þar er
mjög bjart með góðum gólfsíðum gluggum og
útgengt er úr eldhúsinu út á suður verönd. Eldhúsið er með
miklu skápa- og skúffuplássi, með háglans hliðum/framhliðu og stein á bekkjum. Á vegg er stór innrétting með
ofni/örbylgjuofni í vinnuhæð,
innbyggðum ískáp með fyrsti og fallegu opnu rými með hillum.
Stór eyja með
skúffum á báða vegu,
steinn á bekk, eldavél, vaskur og
innbyggð uppþvottavél.Hjónaherbergið er rúmgott með gólfsíðum gluggum
. Baðherbergið er
flísalagt í hólf og gólf í kringum sturtusvæði þar sem er
stór opin flísalögð sturta með glervegg. Stór langur
skenkur með marmaraplötu á, ásamt vaski, upphengdu klósetti og
útgengt af beðherbergi út á bakveröndina. Bæði hin svefnerbergin eru rúmgóð og með gólfsíðum gluggum.
Stofusvæðið er afmarkað með fallegum vegg og á ganghlið hans er
gott skrifstofurými. Þvottahúsið er með miklu skápaplássi, þvottavél og þurrkari eru skipulögð í vinnuhæð. Gengið er úr íbúð, gegnum þvottahús og út í
bílskúrinn sem er
mjög rúmgóður, 32,6 fm að stærð, með epoxý á gólfi og rafdrifinni hurð. Grindavík er kröftugur sjávarbær við suðurströndina. Þar er mannlíf gott, bæjarfélagið vel rekið og hlúð vel að öllum þáttum mannlífs. Skólar, leikskólar, íþróttir með góðum mannvirkjum, tómstundir, listir og flest það sem skapar gott bæjarfélag er í boði í Grindavík. Sjá nánar á grindavik.is Nánari upplýsingar veitir:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali, s.899 0720, netfang: hrannar@fastlind.is