Lyngás 1 D, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
78,9
|
Stærð |
99
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
797
|
Skráð |
10.4.2024 |
Fjarlægt |
19.4.2024 |
Byggingarár |
2015 |
mbl.is |
|
Björgvin Þór Rúnarsson lgfs. og Fasteignaland kynna í einkasölu , Einstaklega glæsilega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð, með sérinngangi af svölum og sér stæði í bílageymslu við
Lyngás 1 D í Garðabæ. Eignin er skráð alls 99 fm að stærð og skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa, þvottahús og sér geymsla í sameign. Niðurlímt gegnheilt parket í allri íbúðinni utan votrýma og fremst í forstofu. Vestur svalir.
Nánari upplýsingar veitir Björgvin Þór Rúnarsson í síma 855-1544 eða bjorgvin@fasteignaland.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Eldhús: Rúmgóð og falleg innrétting með 3cm granít á borðum, niðurfelldum vaski, span helluborði og innbyggðri uppþvottavél sem fylgir. Hvítt gler á milli skápa.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Rafknúnar gardínur í stofu fylgja ásamt sjálfvirkri lýsingu í glugga. Útgengt á vestur svalir.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi. Öll með góðum skápum.
Baðherbergi: Fín innrétting, sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Gott þvottahús innan íbúðar með vélum í vinnuhæð og góðum skápum.
Sérmerkt stæði er í lokaðri bílageymslu undir húsinu. Gert er ráð fyrir hleðslustöð í stæði.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Garðabæ. Stutt í alla helstu þjónustu svo sem verslanir, skóla,leikskóla, sundlaug svo fátt eitt sé nefnt.Með kveðju.
Björgvin Þór Rúnarsson
Eigandi / Löggiltur fasteigna- og skipasali.
bjorgvin@fasteignaland.is
00354-855-1544
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.