Lyngháls 10, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 150 daga á skrá

Verð 189,0
Stærð 469
Tegund Atv.
Verð per fm 403
Skráð 6.5.2021
Fjarlægt 3.10.2021
Byggingarár 1982
mbl.is

Miðbær fasteignasala kynnir: Tíu íbúðir á einni hæð með tveimur inngöngum og lyftu.  ATH !! Einnig til sölu sex íbúðir á sömu hæð allar í útleigu. 
Um er að ræða einn  eignarhluta sem hefur verið breytt nýlega í 10 studioíbúðir:
Íbúðirnar eru á 3ju hæð  í góðu steinsteyptu og álklæddu húsi við Lyngháls 10 í Reykjavík. Íbúðirnar eru allar í útleigu í dag og eru leigutekjur kr. 1,5 milljónir pr mánuð.
Fyrir liggja stimplaðar teikningar af hæðinni sem 10 stúdíóíbúðum / vinnustofum og verið er að ljúka gerð nýrrar eignaskiptayfirlýsingar þannig að hægt verði að breyta skráningu eignarinnar í Fasteignaskrá Íslands.
Samtals fermetrar 468,6
Íbúðirnar voru allar innréttaðar fyrir um 7 árum síðan og þá sett upp eldhús í hverri íbúð og baðherbergi í hverja íbúð.
Baðherbergi eru öll flísalögð og með flísalögðum sturtum, handklæðaofnum og vegghengdum salernum. Harðparket er á gólfum alrýma og herbergja. Brunavarnarkerfi er á hæðinni og er það tengt stjórnstöð Securitas. Eldvarnarhurðir eru frá öllum íbúðum.
Íbúðirnar eru allar í útleigu í dag og eru leigutekjur kr. 1,560 milljónir pr mánuð.
Tengi fyrir þvottavél er í baðherbergjum allra íbúða utan tveggja og sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi er á hæðinni auk þriggja sameiginlegra geymslna.
Gangur fyrir framan íbúðir er flísalagður og mjög snyrtilegur með kerfisloftum með innbyggðri lýsingu.
Sameign er mjög snyrtileg og inngangur fyrir 3. hæð hússins er sameiginlegur með 4. hæð hússins. Stigahús er flísalagt sem og gangur fyrir framan íbúðirnar. Sér póstkassi fyrir hverja íbúð er í forstofu á 2. hæð og dyrasímakerfi fyrir hverja íbúð

Allar upplýsingar veitir  Ingólfur Ingvarsson Löggiltur fasteignasali  sími: 893-7806  ingolfur@midbaer.is 

 
 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13