Klapparstígur 5, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var 2 daga á skrá
Verð |
44,9
|
Stærð |
181
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
248
|
Skráð |
16.8.2021 |
Fjarlægt |
18.8.2021 |
Byggingarár |
1933 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala og Lára Þyri, löggiltur fasteignasali, kynna fallegt einbýlishús við Klapparstíg 5 á besta stað í miðbæ í Reykjanesbæjar. Húsið býður upp á mikla möguleika og er möguleiki á að vera með aukaíbúð á jarðhæðinni. Í dag eru þrjú svefnherbergi á jarðhæð auk baðherbergis, á miðhæð er gert ráð fyrir stofu, eldhúsi, einu svefnherbergi og baðherbergi. Risið er opið með góðri lofthæð undir mæni og vel hægt að setja þar fleiri herbergi. Fjórir gluggar eru í risi, tveir á göflum, einn þakgluggi og guggi í kvisti. Risið er skráð 25,7 fm en raunstærð er 59,2 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Miðhæðin er skráð 66,5 fm og jarðhæðin 88,9 fm. Eignin er því samtals 181,1 fm. Húsið stendur á eignarlóð.
Endurbætur eru hafnar á húsinu en hafa ekki verið kláraðar. Búið er að skipta um flesta glugga og byrjað að undirbúa húsið að utan fyrir steypuviðgerðir og málun.
Allar upplýsingar veitir Lára Þyri í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Framkvæmdir undanfarið að sögn seljanda: Undirlag undir öllum svefnherbergjum á jarðhæð var endurnýjað, einangrun og gólfhitalagnir lagðar.
Baðherbergið var flísalagt og vatnslagnir endurnýjaðar.
Nýtt skólprör úr plasti var lagt út í götu.
Nýleg 90mm skolplögn liggur frá miðhæð að skúr.
Flestir gluggar hafa verið endurnýjaðir.
Talsvert hefur verið rifið út á mið og efri hæð hússins.
Þakjárn var endurnýjað fyrir ca. 6 árum.
Nánari lýsing:
Jarðhæð
Forstofa og gangur: Flísar á gólfi.
Þrjú parketlögð herbergi, tvö þeirra með lítilli eldhúsinnréttingu með vaski. Gólfhiti er í öllum svefnherbergjum á jarðhæð.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Handlaug, salerni, sturta, opnanlegur gluggi. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Af gangi er innangengt í ca
20 fm geymsluskúr með sérinngangi.
Timburstigi liggur frá forstofu upp á miðhæð.
MiðhæðÞrjú stór parketlögð herbergi, eitt þeirra með eldhúsinnréttingu.
Að auki er opið rými með glugga sem var áður baðherbergi.
Stigi liggur frá miðhæð upp í ris.
RisTimburgólf með gólffjölum. Opið rými með fjórum gluggum.
Þetta er falleg eign á besta stað í hjarta Reykjanesbæjar þaðan sem öll helsta þjónusta er í göngufæri. Eignin býður upp á mikla möguleika og eru útleigumöguleikar mjög góðir.Allar nánari upplýsingar veitir
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.