Leifsgata 11, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá
Verð |
75,7
|
Stærð |
91
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
833
|
Skráð |
28.3.2024 |
Fjarlægt |
1.4.2024 |
Byggingarár |
1937 |
mbl.is |
|
Albert Bjarni og
LIND Fasteignasala kynna: Bjarta og vel staðsetta 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð í góðu steinsteyptu fjölbýli í miðbæ Reykjavíkur.
EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Íbúðin skiptist í forstofu herbergi (nú hluti af eldhúsi), eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur sem er auðvelt að nýta sem svefnherbergi.
Nánari lýsing:komið er inn um sameiginlegan inngang en þar er gengið inn íbúðina, möguleiki að hafa sér inngang í
forstofuherbergi.
Hol sem tengir saman öll rýmin, þar er innbyggður fataskápur.
Eldhús með rúmgóðum borðkrók (forstofuherbergi), opið á milli í dag. Í eldhúsi er hvít Ikea innrétting og uppvottavél sem fylgir. Samliggjandi
stofur með vængjahurð á milli. Hægt að nýta aðra sem stofu eða báðar sem
svefnherbergi.
Svefnherbergi með innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, glugga og vaskskáp. Parket er á flestum gólfum en án gólfefni í eldhúsi og komin tími á endurnýjun í öðrum rýmum. Sameignlegt
þvottahús í kjallara ásamt sér kaldri
geymslu undir stiga sem er
ekki í fermetratölu eignar. Klóaklagnir hafa verið endurnýjaðar. Gróin garður.
Um er að ræða afar eftirsótta staðsetningu í þessari
rólegu götu við Hallgrímskirkju í Reykjavík, göngufæri í miðbæinn.
Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum. Stutt í útivist, sund og fallegt umhverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir
Albert Bjarni í síma
8210626 eða á netfanginu
albert@fastlind.is