Verð | 134,0 |
Stærð | 130 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 1.027 |
Skráð | 10.5.2022 |
Fjarlægt | 1.6.2022 |
Byggingarár | 2019 |
mbl.is |
Íbúð 412 er á fjórðu hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar. Íbúðin er skráð 130,5 og inní þeirri tölu er geymsla. Komið er inn í rúmgóða forstofu sem leiðir inn til stofu/eldhús. Baðherbergi með sturtu og rými fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Útgengt er á tvennar svalir sem snúa í austur með útsýni til Hörpu og vestursvalir í inngarð. Íbúðin hefur aðgang að einu stæði (nr. 99) í bílageymslu sem ekið er í frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig Hafnartorgs.
Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.