Sunnusmári 18, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
57,9
|
Stærð |
67
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
868
|
Skráð |
5.5.2022 |
Fjarlægt |
13.5.2022 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega , bjarta og vel skipulagða 3.herbergja 66,7 m2 íbúð á jarðhæð með útgengi út á timburverönd með skjólveggjum í nýlegu húsi á frábærum stað við Sunnusmára 18 í Kópavogi. Samkvæmt FMR er 62,3 m2 auk 4,4 m2 geymslu. Nánari lýsing.Forstofa með harðparket á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum og ljúflokunum á skúffum, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir, Electolux ofn og helluborð , harðparket á gólfi.
Stofa með harðparket á gólfi og útgengi út á timburverönd með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum, walk in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni, innrétting með ljúflokunum á skúffum og efri skápur með speglahurðum, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í sameign
Allar innréttingar í eldhúsi, baðherbergi ásamt fataskápum í herbergi og forstofu eru frá Cubo Design sem er ítalskur framleiðandi.Húsið er álklætt og ál-tré gluggar og því viðhaldslítið og allir innveggir hlaðnir. GSM tengdur mynddyrasími. 201 Smári er nútímalegt borgarhverfi, miðpunktur höfuðborgarsvæðisins. Þar er öll þjónusta fyrir fjölskyldur, verslun og þjónusta í Smáralind, rómuð íþróttaaðstaða, leik- og grunnskóli og heilsugæsla. Allar upplýsingar veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteginasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is