Skólabraut 1, 360
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
29,8
|
Stærð |
80
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
372
|
Skráð |
27.9.2023 |
Fjarlægt |
6.10.2023 |
Byggingarár |
1930 |
mbl.is |
|
Valhöll fasteignasala Síðumúla 27 108 Reykjavík kynnir:Ásgarður, Skólabraut 1 á Hellissandi er komið á sölu. Virkilega fallegt 80,2 fm. einbýlishús með einstöku útsýni yfir Snæfellsjökul. Húsið er á tveimur hæðum auk rislofts. Hvor hæð 40,1 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, rúmgóða stofu og eldhús. Stór lóð er í kringum húsið og næg bílastæði.
Staðsetningin er einstök. Mikið af fuglalífi, sólsetrið er tilkomumikið og falleg norðurljós yfir vetrartímann.
Nánari lýsing neðri hæð: Gengið er inn í rúmgóða forstofu, þaðan eru tröppur upp á efri hæð. Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð.
Baðherbergi er með sturtubaðkari og flísum á gólfi. Þar inni er líka gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Nánari lýsing efri hæð: Eldhúsið er með fallegri innréttingu, nýlegu gólfi og góðu skápaplássi. Borðstofa og stofa eru samliggjandi og þar eru stórir og bjartir gluggar.
Samkv. upplýsingum frá seljanda eru gluggar á neðri hæðinni allir nýlegir og nýlegir rafmagnsofnar + rafmagnstafla er í húsinu. Yfir öllu húsinu er gott rými sem hægt er að opna og útbúa þar rishæð.
Núverandi eigendur höfðu hugsað sér að búa til svefnloft í risinu. Samkv. uppl. frá seljendum var neðri hluti hússins að utan múraur í sumar og þakið málað.
Þetta er fallegt hús á besta stað á Snæfellsnesi. Húsið er stutt frá sjónum, fallegum gönguleiðum og Þjóðgarðinun á Snæfellsjökli.
Hér er frábært tækifæri til þess að eignast vel við haldna eign á góðum stað á Snæfellsnesi með einstaka náttúrufegurð allt um kring.
Ásett verð kr 29,8 millj.Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augu