Beykidalur 4, 260

Verð 75,9
Stærð 182
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 416
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2008
mbl.is 1253160

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu mikið endurnýjaða eign að Beykidal 4,  merkt 02-01, birt stærð 182.5 fm. Stærð íbúðar 120,6 fm, eigninni fylgir tveir 30 fm bílskúrar.

Mjög falleg fjölskyldueign.

Eignin hefur í dag fjögur/fimm svefnherbergi (meðtalin geymsla inn af hjónaherbergi), búið er að breyta þvottahúsi í svefnherbergi og útbúa aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara í baðherbergi. 
Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, rúmgóð og björt stofa, eldhús opið við stofu, herbergjagangur með teimur rúmgóðum barnaherbergjum ásamt hjónaherbergi með auka herbergi innaf því. Baðherhergi að fullu endurnýjað á veglegan máta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari upplýsingar veitir Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is

Íbúðin var öll tekin í gegn árið 2022
*** Gólfefni endurnýjuð
*** Nýjar innihurðar
*** Endurnýjað baðherbergi
*** Ljósastýring í ljósum


 
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Parket og skápur
Forstofuherbergi parket á gólfi og skáp, herbergið var áður þvottahús (hægt að breyta aftur)

Eldhús: Hvít innrétting gluggar á tvo vegu
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með glugga á tvo vegu. Útgengni út á svalir
Svefnherbergjagangur parket á gólfi
Baðherbergi endurnýjað að fullu og komin aðstaða fyrir þvottavél og þurkara. 
Barnaherbergi eru tvö bæði mjög rúmgóð
Hjónaherbergi með parket á gólfi ásamt skáp, inn af hjónaherbergi er herbergi.
Bílskúrar eru tveir og standa hlið við hlið, flísar á gólfi og í öðrum er vinnuborð. Tvö einkastæði eru fyrir framan bílskúra.

Á lóð er leiksvæði með leiktækjum og bekk. Verið er að fara að setja upp hleðslustöðvar fyrir fjölbýlið á vegum húsfélags.
 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62,  240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30