Birkiteigur 6, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
33,9
|
Stærð |
78
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
437
|
Skráð |
5.7.2022 |
Fjarlægt |
15.7.2022 |
Byggingarár |
1982 |
mbl.is |
|
Stuðlaberg kynnir í einkasölu snyrtilega 2-3 herbergja íbúð á 1. hæð í fjórbýlishúsi við Birkiteig 6 í Keflavík.
Eignin er laus við kaupsamning.
*Íbúðin er 59,6 fm en henni fylgir stórt 12,4 fm herbergi í kjallara ásamt 6,6 fm geymslu samtals 78,6 fm
*Húsið stendur á eignarlóð
*Eignin er laus við kaupsamning
Lýsing eignar:
Eldhús með snyrtilegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir frístandandi ísskáp.
Þvottahús er inn af eldhúsi með glugga.
Stofan er björt með útgengi á suðursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtuklefa þar sem sturtubotn er flísalagður. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Góð íbúð ásamt stóru herbergi (12.4 fm2) í kjallara. Einnig er sér 6,6 fm geymsla sem fylgir íbúðinni í kjallara.
Snyrtileg eign sem er í göngufæri frá miðbæ Keflavíkur, leikskóla og grunnskóla.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson
Aðstoðarm.fasteignasala
S. 895-1427 eða 420-4000
magnus@studlaberg.is
Brynjar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
S. 420-4000
------------------------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.