Lækjarbrekka 29, 801
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1147 daga á skrá
Verð |
38,0
|
Stærð |
127
|
Tegund |
Orlofs |
Verð per fm |
299
|
Skráð |
10.11.2016 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
2006 |
mbl.is |
|
Kjöreign fasteignasala s: 533-4040 kynnir Lækjarbrekku 29, 801-Selfossi. Nýlegt vel staðsett sumarhús/heilsárshús á eignarlóð stutt frá Ljósafossvirkjun þ.e. hægrameigin í hlíðinni þegar ekið er austur. Húsið er á einni hæð með stórri timburverönd og heitum potti. - Stærð lóðar er 8,370 fm. Stærð húss er 127.2 fm. samkv. Þjóðskrá Íslands. Um er að ræða sumarhús á einni hæð með fallegu útsýni. Hitaveita og gólfhiti.
Bústaðurinn er fullbúinn og allur frágangur sérlega vandaður. Lýsing: Bústaðurinn skiptist. í gott anddyri, forstofuherbergi með snyrtingu og sturtu þar innaf, einnig er sérinngangur í herbergið að utan. Rúmgóð stofa og borðstofa, opið eldhús við stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi á sérgangi. Útigeymsla með hitainntaki. ELDHÚS með fallegri viðarinnréttingu, innbyggð tæki, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél fylgja. BAÐHERBERGI með glugga og hurð út að potti, flísalagt með sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél. Eikarhurðir, góðir skápar í anddyri og öllum herbergjum sem eru frekar rómgóð. Flísar á öllum gólfum, hitalögn í öllum gólfum. Gott malar bílaplan er við bústaðinn. -
Innbú getur fylgt eftir samkomulagi. Mjög góð staðsetning, stutt í Gullna hringinn og á Selfoss í flesta þjónustu ef með þarf. Ath. Afhending við kaupsamning.
UIpplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is
Ólafur Guðmundsson sölustjóri gsm. 896-4090 olafur@kjoreign.is
Þórarinn Friðriksson lögg. fasteignasali gsm. 844-6353 thorarinn@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is