Hverfisgata 94, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
117,9
|
Stærð |
122
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
963
|
Skráð |
31.8.2023 |
Fjarlægt |
15.9.2023 |
Byggingarár |
2018 |
mbl.is |
|
DOMUSNOVA KYNNIR GLÆSILEGA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í NÝLEGU FJÖLBÝLISHÚSI MEÐ LYFTU OG STÆÐI Í BÍLAKJALLARA VIÐ HVERFISGÖTU 94, 101 REYKJAVÍK. * ÞVOTTAHÚS INNAN EIGNAR
* ÚTGENGT ÚT Í GARÐ TIL SUÐURS
* SVALIR TIL NORÐURS
* RÚMGOTT ALRÝMI
* TVÖ RÚMGÓÐ HERBERGI
* STÆÐI Í BÍLAKJALLARA
* FASTEIGNAMAT 2024, 99.000.000 KR.
VINSAMLEGA BÓKIÐ TÍMA Í SKOÐUN !
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgf. í síma 856 3566 eða netfang ingunn@domusnova.isVera Sigurðardóttir lgf. í síma: 866 1110 eða netfang: vera@domusnova.is* Sérsmíðaðar vandaðar innréttingar úr svartbæsaðri eik sem ná upp í loft.
* Borðplötur úr kvartstein bæði í eldhúsi og á baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni og
* Innfelld lýsing í loftum að hluta.
* Myndavélakerfi er við inngang íhúsið og myndavéladyrasími, rafmagnsopnun er á hurðum í sameign.
* Sameign hússins er mjög snyrtileg, bílakjallari er lokaður og upphitaður,
* Búið að leggja fyrir rafhleðslustöð.
* Sameiginleg hjólageymsla, með útgengt út á baklóð hússins. Innst í hjólageymslu hefur verið
útbúin líkamsræktaraðstaða fyrir húsið með tækjum.Nánari lýsing:Forstofa/gangur: Góðir skápar ,vínilparket á gólfi.
Eldhús/borðstofa/stofa: Opið rými, mjög rúmgott með fallegri innréttingu og eyju, vínilparket á gólfum útgengt á svalir til norðurs.
Hjónaherbergi: Með fataskápum, vínilparket á gólfum, útgengt út á suður útisvæði sem snýr inn í fallegan sameiginlegan garð. Hurð út í garð var bætt við eftirá. Ekki liggur fyrir þinglýst samþykki fyrir því
Herbergi: Rúmgott með fataskáp og vínilparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum að mestu og gólfi, walk in sturta, upphengt wc og rúmgóð innrétting.
Þvottahús: Flísar á gólfi, rúmgóð innrétting með vask.
Geymsla: Sér geymsla í sameign.
Hjólageymsla: Sameiginleg í sameign.
Bílakjallari: Sér merkt stæði í upphituðum bílakjallara.
Ath! Útisvæði út frá hjónaherbergi íbúðar er ekki skilgreint sem séreign í eignaskiptasamning. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda
á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að
kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að
leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær
upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda
sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við
upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki
eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama
á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er
0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl.
Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi
lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af
brunabótamáti, þegar það er lagt á.