Þykkvaflöt 1, 820

Fjarlægð/Seld - Eignin var 20 daga á skrá

Verð 42,9
Stærð 150
Tegund Einbýli
Verð per fm 286
Skráð 9.4.2021
Fjarlægt 29.4.2021
Byggingarár 1949
mbl.is

Domusnova og Guðný Guðm., lögg. fast. s. 8216610, gudny@domusnova.is kynna 150 fermetra bjart einbýlishús í nýlegu hverfi á Eyrabakka. Íbúðarhúsið er 110 fermetra sérlega bjart á tveim hæðum ásamt 40 fermetra bílskúr. Efri hæðin skiptist í baðherbergi og þrjú björt rúmgóð herbergi. Neðri hæðin skiptist í  forstofu, WC og þvottahús, lítið herbergi, eldhús og tvær samliggjandi stofur. Húsið er byggt 1949 en var flutt á steyptan nýjann grunninn upp úr aldamótum eða um 2001 með þá undirstöðum og löggnum frá þeim tíma. Þegar húsið sett á nýjan grunnin er það mikið endurnýjað eins og t.d. ofnar, rafmagn og utanhússklæðning.  Skriðkjallari er undir húsinu. Byggður var frístandandi 40 fermetra bílskúr 2012.  

Nánari upplýsingar veita:
Guðný Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali / s.821 6610 / gudny@domusnova.is

Íbúðarhús: 
Neðri hæðin. 

Forstofa/WC/þvottaaðstaða. 
Byggð var forstofueining við húsið 2012 og er inn af henni WC og þvottaaðstaða með opnanlegum glugga. 
Eldhús. Hvít eldri Ikea innrétting. Tveir góðir gluggar í sitt hvora átina.
Lítið herbergi sem auðvelt er að taka niður, til að gera stærra opið rými. Lokuð geymsla undir stiga. 
2 stofur samliggjandi með horngluggum sem gerir þær sérlega bjartar. 
Hol þar sem gengið er upp á efri hæðina. Fallegur gluggi við stigann miðjann. 
Blönduð eldri gólfefni.
Efri hæðin.  
Gangur með glugga og parketi á gólfum.
3 svefnherbergi. Herbergin eru björt og öll með fullri lofthæð að mestu, rúmgóð og með parketi á gólfum.
Bað er með glugga, sturtu í baðkar, innréttingu undir vaski og til hliðar. 

Bílskúr: er eitt rými með gluggum til norðurs og austurs í botninum. Innkeyrsluhurð og hliðar inngangshurð. Steypt gólfplata. Rafmagn og hiti ekki komin á. 
Hús að utan: ásamt bílskúrnum er álklætt með grásanseraðri báru. Hvítir gluggar. Ál áfellur eru ósettar á glugga en til staðar.  Ryð fyrir ofan glugga frá eldri áfellum. 
Lóð: er 750 fm snyrtileg leigulóð með grasflötum og djúpu malarplani fyrir framan bílskúrinn. Timburverönd til suðurs með timbur skjólveggjum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31