Brúarfljót 4, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 110 daga á skrá

Verð 70,0
Stærð 6.482
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 11
Skráð 9.2.2018
Fjarlægt 30.5.2018
Byggingarár
mbl.is

Eignamiðlun kynnir: 

6.481,8 fm atvinnulóð við Brúarfljót 4 á Leirvogstungumelum í Mosfellsbæ. Flott staðsetning rétt við Vesturlandsveginn og Leirvogsá. Nýtingarhlutfall á lóðinni er 0,5.
Búið er að greiða lágmarks gatnagerðargjöld, það er, greitt hefur verið fyrir gatnagerð á leyfðu byggingarmagni. Áætlað er að gatnagerð verði lokið fyrir 1. júní 2018.


Heimilt er að reisa á svæðinu byggingar fyrir þjónustu- og verslunarstarfsemi, léttan mengunarlausan iðnað, hátækni- og vísindafyrirtæki og hverskonar aðra starfsemi, sem uppfyllir kröfur um vandaðan frágang bygginga og lóða. 
Byggingareitur er afmarkaður með slitnum línum og að hluta með heildreginni línu, svokallaðri bindandi byggingarlínu. Allar byggingar og byggingarhlutar skulu vera innan byggingarreits þar með taldir hugsanlegir skjólveggir, skýli fyrir sorp eða varning o.s.fv. Byggingar skulu liggja að bindandi byggingarlínu á a.m.k. 10m kafla.
Lóðin er seld í núverandi ástandi. Göngustígar, kantsteinar, frágangur við lóðamörk verða ekki kláruð fyrr en uppbyggingu er lokið við viðkomandi götu

Nánari upplýsingar veitir Gunnar J Gunnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 695-2525 eða GunnarJ@Eignamidlun.is

Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist hina seldu eign í skuldaskilum og að seljandi getur því ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína. Seljandi bendir því kaupanda á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á eigninni og að kaupandi leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar og til að afla sér upplýsinga um byggingarleyfi, byggingarleyfis- og gatnagerðargjöld, skipulagsgjöld og ábyrgðir byggingarstjóra og iðnmeistara ásamt úttektum og öðrum gögnum varðandi eignina hjá byggingarfulltrúa. Kaupverð tekur mið af ástandi eignarinnar sem selst í því ástandi sem hún var í við nákvæma skoðun kaupanda og athugun hjá byggingaryfirvöldum og hann sættir sig við að öllu leyti.
 

Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3