Árskógar 8, 109

Fjarlægð/Seld - Eignin var 141 dag á skrá

Verð 77,9
Stærð 110
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 705
Skráð 6.12.2023
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 1993
mbl.is

Árskógar 8 Reykjavík (fyrir 60 ára og eldri)

Eignin er laus við kaupsamning!

Lind fasteignasala / Guðmundur Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og bjarta útsýnisíbúð við Árskóga 8 í Reykjavík, húsi fyrir 60 ÁRA OG ELDRI.
Innangengt er í félagsmiðstöðina Árskóga þar sem er skipulagt félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar og hægt er að fá keyptan mat og síðdegiskaffi virka daga. 
Ýmis þjónusta er í boði í húsinu og er þar m.a. hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa. 
Íbúar við Árskóga 6 og 8 standa fyrir fjölbreyttu félagslífi og eru oft viðburðir á þeirra vegum.Stutt er í helstu þjónustu í Mjóddinni, s.s. heilsugæslu, verslanir og fl. 

Húsvörður er í byggingunni.

Kvöð er á eigninni um að kaupendur skulu vera 60 ára eða eldri og félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík.


Um er að ræða 110,5 fermetra 4ra herbergja íbúð í lyftuhúsi (2 lyftur) á 12. hæð (næst efstu hæð). Glæsilegt útsýni er til norðurs og austurs, m.a. út á sundin, að Akrafjalli, Esjunni, Úlfarsfelli, Snæfellsnesi, yfir Miðborgina og víðar.

Íbúðin er með rúmgóðri forstofu/holi, þremur svefnherbergjum (eitt nýtt sem rúmgóð sjónvarpsstofa í dag með gólfsíðum gluggum glæsilegt útsýni
Stór stofa sem rúmar vel setustofu og borðstofu, svölum til austurs, eldhúsi og baðherbergi .

Húsið er nýlega málað, skipt var um allt upprunalegt gler, lyftur teknar í gegn, húsið viðgert að utan og dren endurnýjað. Eigninni fylgir hlutdeild í samkomusal á jarðhæð auk hlutdeildar í húsvarðaríbúð.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Með flísum á gólfi og skápum sem ná upp í loft.
Stofa: Er stór, björt og með fallegu gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi.  Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til norðurs og austurs með stórkostlegu útsýni út á sundin, yfir Miðborgina og til fjalla. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til austurs með afar fallegu útsýni til fjalla. 
Eldhús: Með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi og viðar/hvítri eldhúsinnréttingu. AEG bakaraofn, helluborð, háfur, flísar á milli skápa.
Svefnherbergi I: Með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi, góðum skápum sem ná upp í loft og glugga til austurs með fallegu útsýni.
Svefnherbergi II: Með gegnheilu fiskibeinaparketi á gólfi, skápum sem ná upp í loft og gólfsíðum gluggum til norðurs með glæsilegu útsýni að Esjunni, Akrafjalli, út á sundin og víðar.
Baðherbergi: Með dúk á gólfi og flísum á veggjum.Góð  innrétting með vaski.  Í baðherbergi er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vinnuvaski.

 Sérgeymsla í kjallara sem er 4,4 fermetrar. :Með máluðu gólfi.

Nánari upplýsingar:
Bókið skoðun hjá Guðmundir Hallgrímssyni lögg. fasteignasala í síma 898-5115 eða á netfanginu gudmundur@fastlind.is 
Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21