Ásgarður 0, 801

Fjarlægð/Seld - Eignin var 178 daga á skrá

Verð 89,0
Stærð 4.703.000
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 0
Skráð 7.7.2020
Fjarlægt 1.1.2021
Byggingarár
mbl.is

101 Reykjavík fasteignasala og Sif Eir Magnúsdóttir lögmaður og lgf. kynna: Sumarhúsaland með 72 skipulögðum lóðum á jörðinni Ásgarði í Grímsnesi sem nær upp í Búrfellsfjall.
 
Lýsing eignar: Ásgarðslandið er staðsett við Sogið í Grímsnesi við rætur Búrfells. Sé komið frá Suðurlandsvegi er ekið upp Biskupstungnaveg og ekið Þingvallaveg skömmu eftir Þrastarlund. Landið liggur beggja megin við Búrfellsveg. Hluti landsins nær að litlu stöðuvatni á toppi Búrfells. Landið er skráð í fasteignaskrá 444,6 hektarar. Það skiptist næstum jafnt í heiðarland og land undir skipulagðar lóðir og eru 76 lóðir af 230 óseldar. Með lóðunum fylgja leiksvæði, opin svæði til útivistar og skógræktarsvæðin en í samvinnu við Suðurlandsskóga hafa verið plantaðir tæplega 40 ha. af skógi á landinu. Lóðirnar eru frá 0,5 til 1,7 ha. að stærð. Þær liggja sumar meðfram Soginu og eins liggja aðrar ofar með frábæru útsýni. Á landinu er búið að leggja hitaveitu, kalt vatn og rafmagn.
 
Svæðin skiptast í fjögur undirsvæði:
Ásgarðssvæði (eldra).
Ferjuholt (nýtt svæði við bakka Sogsins).
Sunnubakki (nýtt svæði við bakka Sogsins).
Giljatunga (nýtt svæði við rætur Búrfells).
 
Samtantekt: Um er að ræða afar fallegt landsvæði með skipulögðum lóðum í blómlegri sumarhúsabyggð stutt frá höfuðborgarsvæðinu. Ýmsar náttúruperlur Suðurlands eru í næsta nágrenni s.s. Skálholt, Þingvellir, Geysir, Gullfoss og Kerið. Svæðið býður upp á veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Stutt er í næstu þjónustu en Selfoss er í ca. 16 km. fjarlægð. 
 
Nánari upplýsingar veitir Sif Eir Magnúsdóttir lögmaður og lgf. í síma 896 0669 eða á sif@101.is
 

Myndir

Mynd 1