Njálsgata 72, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
59,9
|
Stærð |
71
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
846
|
Skráð |
23.4.2024 |
Fjarlægt |
1.5.2024 |
Byggingarár |
1932 |
mbl.is |
|
Palsson Fasteignasala kynnir:
Mikið endurnýjuð, björt, þriggja herbergja íbúð í hjarta Reykjavíkur við Njálsgötu 72.* Gluggar í þrjár áttir* Endurnýjað gólfefni, eldhús og baðherbergi
* 2016 var endurnýjað þakjárn, settar nýjar þakrennur og snjóhrunsvörn
* 2022 voru endurnýjaðir gluggar í öllu húsinu sem og þakgluggar og hurð tr í bakgarð.* Ofnalagnir og hitavatnslagnir hafa verið endurnýjaðar.
* Lagnagrindin endurnýjuð að hluta og skipt um þrýstijafnara.
* Hiti í stétt framan við hús.Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 849-1921 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurSamkv. Fasteignaskrá Íslands er eignin skráð 70,80 m2. Skipulagi eignar hefur aðeins verið breytt frá upprunalegri teikningu.
Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Forstofuhol er með flotuðu, lökkuðu gólfi.
Eldhús er opið með stofu og þar er flotað, lakkað gólf. Svört innrétting með viðarborðplötu, helluborði og bakarofni.
Stofa / borðstofa er skráð sem herbergi á teikningu en nýtist vel sem stofa. Gluggar á tvo vegu og bjart rými.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp.
Stofa 2 er rúmgóð með glugga á tvo vegu og parket á gólfi. Hefur einnig verið nýtt sem
svefnherbergi 2.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, handlaug, upphengdu salernig og flotuðu gólfi.
Sérgeymsla er í sameign, skráð 6,0 m2.
Í sameign er einnig
þvottahús og
þurrkherbergi. Sameiginlegur bakgarður.
Íbúðin hefur fengið mikla endurnýjun síðustu ár. Þá var parket lagt á herbergi og önnur gólf flotuð/lökkuð. Innréttingar í bæði eldhúsi og baðherbergi endurnýjaðar sem og nýjar flísar lagðar á baðherbergi. Ofnalagnir og rafmagnstafla í íbúðinni endurnýjuð ásamt aðal rafmagnstöflu hússins. Þak endurnýjað 2016, nýjir þakgluggar settir, rennur endurnýjaðar og sett snjóhrunsvörn.
2022 voru endurnýjaðir gluggar í öllu húsinu sem og hurð út í bakgarð.
Göngufæri er í iðandi miðbæ Reykjavikur, leikskóla og grunnskóla, Iðnskólann, Sundhöll Reykjavíkur, ótal kaffihús, verslanir og veitingastaði.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.