Hverfisgata 33, 220
Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá
Verð |
56,9
|
Stærð |
178
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
319
|
Skráð |
7.1.2020 |
Fjarlægt |
12.1.2020 |
Byggingarár |
1921 |
mbl.is |
|
*** OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAG 8 JAN KL.17.00-17.30 HVERFISGATA 33 VERIÐ VELKOMIN**Fasteignasalan TORG kynnir: Einbýlishús á 2.hæðum með bílskúr á þessum eftirstótta stað miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem örstutt er í alla þjónustu. Um er að ræða eign sem er skráð 178,5fm og þar af er bílskúrinn skráður 19,5. Fimm svefnherbergi eru í húsinu, stofa og rúmgott hol. Sjarmerandi baklóð og hverfi þar sem endurnýjun á sér stað á eldri fallegum húsum og gefur hverfinu fallegt yfirbragð. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Nánari lýsing: Efri hæð skiptist í : Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og lítil geymsla/lín skápur.
Forstofa: komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, á gangi inn af forstofu er skápur undir yfirhafnir.
Eldhús: eldhús er rúmgott með upprunalegri innréttingu, flísar eru á milli efri og neðri skápa, borðkrókur við glugga og dúkur á gólfi.
Stofa: stofa eignarinnar rúmar einnig borðstofu, parket er á gólfi og hillur á vegg sem fylgja með.
Baðherbergi: innaf forstofu er upprunalegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar, gluggi og eldri innrétting.
Svefnherbergi: tvö svefnherbergi eru á efri hæð hússins og þrjú á neðri hæð. Svefnherbergin á efri hæð eru með eikarparketi á gólfi og herbergin á neðri hæð eru tvö með nýlegu harðparketi og eitt með teppi á gólfi.
Neðri hæð skiptist í Hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Hol: rúmgott með parketi á gólfi og innbyggðum geymsluskáp undir stiga. Útgengt er út á bílaplan frá holi.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með sturtu og glugga.
Þvottahús: rúmgott þvottahús með vaski er á neðri hæð. Innangengt er í bílskúrinn frá þvottahúsi.
Geymsla: á neðri hæðinni er geymsla.
Bílskúr: bílskúrinn er með glugga, göngudyrum og köldu vatni.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is