Tunguvegur 23, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá

Verð 160,0
Stærð 368
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 435
Skráð 12.10.2022
Fjarlægt 28.10.2022
Byggingarár 1974
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Einbýli með mikla möguleika við Tunguveg 23 í Reykjavík. Eignin er skráð 367,9 fm. Húsið hefur verið í rekstri sem gistiheimili og er innra skipulag þess ekki í samræmi við teikningar. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  

Nánari lýsing: Efri hæðin er á tveimur pöllum og skiptist skv. teikningum í anddyri, hol, sólskála, sjónvarpsstofu/dagsstofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Í dag er búið að hólfa sjónvarpsstofuna/dagsstofuna niður í þrjú svefnherbergi. Neðri hæðin skiptist skv. teikningum í anddyri, bílskúr, þrjú tómstundarherbergi, geymslu og baðherbergi. Geymslan og tómstundarherbergin hafa verið í útleigu sem herbergi með aðgengi að sameigilegu baðherbergi. Á sameiginlegum gangi með þessum herbergjum er síðan sér íbúð en skv. teikningum skiptist hún í hol, baðherbergi, setustofu, eldhús og tómstundarherbergi. Íbúðin er í útleigu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19