Reykjastræti 5 (409), 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 115,0
Stærð 81
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.422
Skráð 10.3.2023
Fjarlægt 24.3.2023
Byggingarár 2019
mbl.is

Miklaborg kynnir: Rúmgóða og bjarta 2ja herbergja horníbúð í Austurhöfn með fallegu eikarparketi. Stórir gluggar til suðurs og austurs inn í fallegan lokaðan garðinn. Með íbúðum við Austurhöfn hafa ný viðmið verið sett í gæðum. Íbúðin er einnig til leigu skv. nánara samkomulagi. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. lgf. s:773-6000 eða thorunn@miklaborg.is

Austurhöfn er  glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs innan sem utan. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni og er hann eingöngu aðgengilegur fyrir íbúa hússins.

Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um allt er viðkemur byggingu og umhverfi.

Sjá hlekk á íbúðina hér : https://austurhofn.is/apartment/apartment-409/

Glæsilegt eikarparket er á stofu og svefnherbergi, en baðherbergi og þvottahús eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og er klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, ofl

Íbúð 409 er á 4.hæð.  Henni fylgja glæsilegar  12 fm suður svalir.   Góðir skápar eru í forstofu, en þaðan  er gengið beint inn í bjarta og stóra stofuna.  Úr stofunni er gengt út á stórar svalirnar sem ná yfir allan endaveginn.  Gott  sér þvottahús er innan  íbúðarinnar og svefnherbergið er rúmgott með mjög góðum skápum   Hún er skráð 74,3 fm og því til viðbótar er 5,6 fm geymsla i kjallara.

Nánari upplýsingar veita
Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
 
 

Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515 eða jko@miklaborg.is

Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25