Skógarbyggð 5, 320

Verð 0,9
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 12.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár
mbl.is 1248032

Skógarbyggð 5, 320 Borgarbyggð (Sumarhúsalóð)

Um er að ræða 4.536 fm leigulóð í landi Bjarnastaða í Hvítársíðu, aðeins 5-10 min akstur frá Húsafelli. Lóðin er leigð til 25 ára í senn með forleigurétti áfram að þeim tíma loknum. Stofngjald í upphafi eru 950.000 kr. Árlegt leigugjald lóðar er 159.032 kr. Hitaveita kostar um 880.000 kr í tengigjald og mánaðargjaldið er um 9-10 þúsund krónur. Gámastöð fyrir sorp er á svæðinu.

Vatn og rafmagn við lóðarmörk, leigusalar sjá um að vegir séu akfærir að lóðarmörkum, bílastæði skulu vera innan lóðarmarka og sér leigutaki um að útfæra þau. Hitaveita er á svæðinu og er sérstakt félag um rekstur hennar. Möguleiki er því fyrir leigutaka að fá inn heitt vatn gegn greiðslu.

Mjög virkt sumarhúsafélag er á svæðinu og er Facebook síða þar sem hægt er að sjá með færð og þjónustu á hverjum tíma. Leigusalar sjá um að mokstur og sinna því vel. Hitaveitan er í eigu sumarhúsaeigenda og er sér Facebook síða um þau mál. Lóðin snýr á móti suðri, er skógi vaxin, með fallegu útsýni yfir sveitina í kring og gott skjól fyrir norðanáttinni.


Helstu ákvæði til byggingar skv. skipulagi, sjá nánar í myndum texta og skilmála:
Hámarksstærð húsa miðast við 150 fm í heildarbyggingarmagn.
Hámarsstærð smáhúsa verði ekki meiri en 20 fm.
Hæsti punktur þaks verði ekki hærri en 5,5 m yfir aðalgólfi.
Þakhalli 15-25 gráður.
Sefna mænisása skal samræmd.
Dökkir jarðlitir æskilegir á öllum mannvirkjum.
Mannvirki séu ekki nær lóðarmörkum en 10 metra.


Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang: bjorgvin@fasteignaland.is
Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasasali, s. 692-3344, netfang: hronn@fasteignaland.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30