Holtsvegur 25, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 31 dag á skrá

Verð 53,5
Stærð 96
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 558
Skráð 9.1.2020
Fjarlægt 9.2.2020
Byggingarár 2014
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Glæsilega og bjarta 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð með miklu útsýni yfir Urriðavatn og inní Hafnarfjörð. Alls er eignin 95,9 fm, þar af er geymsla í sameign 7,6 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérstæði í lokaðri bílageymslu.  Allar nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 692-3344 eða hronn@fstorg.is.

Íbúðin er skráð 95,9 fm, ásamt geymslu í sameign og skiptist þannig: anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi. Geymsla og sérstæði í bílageymslu.
Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum skápum.
Eldhús: Bjart og fallegt eldhús með smekklegri innréttingu og flísum á milli skápa.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa með flísum á gólfi og útgengi á stórar og góðar suður svalir.
Svefnherbergi #1: Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi #2: Rúmgott svefnherbergi með flísum á gólfi og góðum skápum.
Baðherbergi: Góð innrétting, upphengt salerni og baðkar. Tengi er inná baðherbergi fyrir þvottavél og þurrkara.Flísalagt í hólf og gólf.
Samantekt: Hér er um að ræða mjög skemmtilega og vandaða 3ja herbergja útsýnisíbúð á frábærum stað í Urriðaholti í Garðabæ.
Rúmgóð geymsla er í  sameign ásamt sér stæði í lokaðri bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 692-3344 eða hronn@fstorg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14