Verð | 54,9 |
Stærð | 214 |
Tegund | Einbýli |
Verð per fm | 257 |
Skráð | 12.2.2024 |
Fjarlægt | 23.2.2024 |
Byggingarár | 1965 |
mbl.is |
Þetta er íbúðarhúsið að Húnabraut 19. Mikið endurnýjuð eign. Suður og vestur svalir. Á neðri hæð er stúdíóíbúð og tvö herbergi, sem hentað getur til útleigu.
Nánari lýsing
Íbúð og herbergi á neðri hæð: Gott rými. Einnig stór herbergi inn af íbúðinni sem gætu nýst sem svefnherbergi eða til útleigu. Stigi upp í íbúð á efri hæð.
Snyrting: Lítil snyrting er við inngang á neðri hæð.
Efri hæð.
Eldhús er rúmgott og innréttingar nýlegar. Parkett á gólfi.
Stofan er parketlögð. Úr stofu sér yfir á Strandir. Gengið út á suðursvalir.
Mjög stórt baðherbergi sem allt var tekið í gegn fyrir nokkrum árum. Það herbergi er einnig þvottahús. Þar eru flísar í hólf og gólf.
Svefnherbergi: Tvö stór svefnherbergi eru á hæðinni. Nýlegt parkett er á allri hæðinni. Engir þröskuldar. Auk þess eru tvö svefnherbergi á neðri hæð, sem áður er getið.
Bílskúr er innréttaður sem stúdíóíbúð.
Endurbætur: Húsið var málað að utan árið 2021. Nýir gluggar og útidyr eru í húsinu. Þá var bræddur nýr dúkur á þak hússins sama ár. Baðherbergi allt endurnýjað. Stórt baðkar, hiti í gólfi. Allar lagnir á baði endurnýjaðar nýlega. Þar eru skápar fyrir þvottavél og þurkara með skúffum undir.
Góð eign á góðum stað í bænum þar sem stutt er í alla þjónustu.
Íbúðin er alls 162,4 ferm. og verslunarrýmið er 51,3 fm. Alls 213 fm. Efri hæðin er alls 107 fm.
Upplýsingar veita Friðrik Brynjólfsson s. 662-8034 fridrikhalldor@budubetur.is eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972 eða 891 9425 stefano@domus.is