Kirkjusandur 112, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 69,9
Stærð 116
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 604
Skráð 2.6.2020
Fjarlægt 2.6.2020
Byggingarár 2019
mbl.is

Miklaborg kynnir vandaðar 2ja til 5 herbergja lúxusíbúðir á einstökum útsýnisstað í þessu glæsilega húsi "STUÐLABORG" við Hallgerðargötu 7 við Kirkjusand í Reykjavík, nálægt miðborg Reykjavíkur og í nálægð við Laugardalinn. Um er að ræða 3ja herbergja 115,8 fm íbúð á 1. hæð. Íbúðin stendur á horni hússins og er með tvennum svölum og sjávarútsýni í norður og austur. Eignin skiptist í anddyri, stofu/eldhús, tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi, fataherbergi og tvennar svalir. Stofa og eldhús eru í sama opna rýminu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í öðru baðherberginu. Fataherbergi og baðherbergi inn af hjónaherbergi. Eignin er skráðir samtals 115,8 fm, þar af er íbúð 106,9 fm og geymsla 8,9 fm. Eigninni fylgja tvennar svalir, aðrar sem snúa í norðvestur (8 fm) og hinar í norðaustur (3,1 fm). Kirkjusandur er endurbyggður borgarhluti við sjávarsíðuna þar sem ný kennileiti Reykjavíkur munu rísa og klára uppbyggingu strandlínu höfuðborgarinnar. Hverfið við Kirkjusand verður blönduð byggð íbúða-, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis og rís það nú á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins, samtengt viðskiptahverfinu í Borgartúni og sjónrænni tenginu við miðbæinn og höfnina. Sannkallað miðborgarhverfi. Byggingaraðili er ÍAV hf. Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar.

Heimasíða með nánari upplýsingum: www.105midborg.is 

Tengill á þessa íbúð, 0112. 

Stærðir íbúða eru frá 58-254 fm. Fjölbreytileiki ræður ríkjum í íbúðabyggingum í hverfinu, hvort sem er litið er til skipulags, útlits, herbergjafjölda eða stærða íbúða, sem þar verða í boði.  Stórkostlegt útsýni er til norðvesturs yfir sundin blá, en einnig til suðausturs yfir græna og gróna byggð og útivistarsvæði  Laugardalsins.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigagöngum og verður eitt  vandaðasta íbúðarhúsið í hverfinu. Innréttingar og tæki af viðurkenndum og vönduðum gerðum.  Borðplötur innréttinga verða úr kvartsteini.  Gólfhitakerfi verður í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið.  Öll rými verða að  fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn í íbúðarrými. Loftræstingin tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki. Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar. 
Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1200 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum.  Nánar af heimasíðu.
Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa  Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar. SHL hafa hannað margar heimsþekktar byggingar víða um heim líkt og konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, „Kristallinn“ í Kaupmannahöfn. Arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen hannaði einnig Skuggahverfið í Reykjavík.  VA arkitektar hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal hefur stofan fjórum sinnum verið tilnefnd fyrir hönd Íslands til hinna virtu Mies van der Rohe.  Byggingaraðili er ÍAV hf.  ÍAV hf. er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki Íslands í dag. Eitt stærsta verk ÍAV er Harpa, ráðstefnu og tónlistarhús Reykjavíkur. Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.kktar byggingar víða um heim líkt og konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, „Kristallinn“ í Kaupmannahöfn. Arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen hannaði einnig Skuggahverfið í Reykjavík.  VA arkitektar hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal hefur stofan fjórum sinnum verið tilnefnd fyrir hönd Íslands til hinna virtu Mies van der Rohe.  Byggingaraðili er ÍAV hf.  ÍAV hf. er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki Íslands í dag. Eitt stærsta verk ÍAV er Harpa, ráðstefnu og tónlistarhús Reykjavíkur. Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.
 

Nánari upplýsingar veita: 

Ásgrímur Ásmundsson, s 865-4120 - asi@miklaborg.is

Páll Þórólfsson   s: 893 8829 - pall@miklaborg.is

Þórunn Pálsdóttir s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jassi@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8