Borgahella 15O, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 50 daga á skrá

Verð 20,9
Stærð 42
Tegund Atv.
Verð per fm 492
Skráð 17.5.2023
Fjarlægt 7.7.2023
Byggingarár
mbl.is


Seld með fyrirvara um fjármögnun

Nýtt 42,4fm fullbúið iðnaðarbil við Vallarhverfið. Göngu- og innkeyrsluhurð. 13fm milliloft. 3ja fasa rafm. Salerni í sameign.

Borgahella 13-15: IÐNAÐARBIL - atvinnuhúsnæði (geymsla, lager, frístundir) við Borgahellu 13-15, Hafnarfirði. Birt stærð 42,4fm. 13 fm milliloft. Frábær staðsetning við Vallarhverfið. 

Svæðið: Nýtt glæsilegt atvinnuhúsnæði og/eða geymsla/lager á malbikaðri afgirtri 4.157 fm lóð (öryggisgirðing) með lokuðu rafstýrðu aðgangshliði við Borgahellu 13-15, 221 Hafnarfirði.  Samtals eru 38 bil á sameiginlegri lóð og hvert bil um 42,5 fm að stærð. Steyptir sökklar og botnplata. Burðarvirki fasteignar er úr hágæða límtrésbitum og límtréssúlum frá Límtré Vírnet. Þak og útveggir eru úr stál-samlokueinignum með harðpressaðri steinull frá Límtré Vírnet. Eignin afhendist fullfrágengin utan sem innan.

Húsnæðið: Breidd húsnæðis 4,6 fm og lengd 9,2 fm. Vegghæð við útvegg er 3,5m og 4,7m innst í hverju bili. Möguleiki á millilofti allt að 13fm. Innkeyrsludyr með rafmótor 3,0m á hæð og 2,5m á breidd. Inngöngudyr við hlið innkeyrsludyra og gluggi fyrir ofan inngöngudyr með opnanlegu fagi. Á endabilum eru gluggar á gafli.
Frágangur: Gólf eru járnbent staðsteypt, vélslípuð og máluð með epoxy málningu. Skolvaskur og blöndunartæki verða uppsett. Skólprör undir gólfplötu sem gefur möguleika á uppsetningu fyrir klósett. Ofn uppsettur. Raflögn frágengin með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu. Lýsing í loftum frágengin. Útilýsing við innkeyrsludyr. Niðurfall fyrir miðju gólfi.
Lóðin afhendist fullfrágengin, afgirt með 2m girðingu, og aðgangsstýrðu hliði. 16 sameiginleg bílastæði á lóðinni. Lóð malbikuð, með niðurföllum, og bílastæði merkt. Sameiginleg sorptunnugeymsla. Sameiginleg salernisaðstaða. Húsfélag er stofnað um sameign og mun tryggja góða umgengni.

 

Mikil áhersla hefur verið lögð á hágæða byggingarefni og fullbúinn frágang svo fasteignin verði fullbúin og tilbúin til notkunar við afhendingu.

 

Engin VSK kvöð er á húsnæðinu. Það hentar einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum.

 

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993. 

 

Þessi eign er í beinni sölu, þ.e. án milligönguaðila. Titaya ehf. er fasteignafélag og selur eingöngu eigin eignir.

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Skiptir milljón þig máli? Fáðu tilboð í söluþóknunina á www.e-fasteignir.is
Hugbúnaðurinn sendir fyrirspurn á alla fasteignasala á Íslandi.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26