Laugavegur 31, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 172 daga á skrá

Verð 690,0
Stærð 1.542
Tegund Atv.
Verð per fm 448
Skráð 21.6.2019
Fjarlægt 10.12.2019
Byggingarár 1945
mbl.is

Eignamiðlun kynnir: 

 
LAUGAVEG 31 TIL SÖLU
Um er að ræða eitt glæsilegasta húsið í miðbæ Reykjavíkur en húsið er staðsett á horni Laugavegs og Vatnsstígs. Eignin skiptist i í kjallara, götuhæð og þrjár skrifstofuhæðir auk geymslulofts. Lyfta er i í húsinu og nær hún úr kjallara og upp á 4. hæð. Húsið er
reisulegt og mjög falleg bygging. Að innan eru  á mörgum stöðum skrautlistar og ýmsar skreytingar sem gefa húsinu virðulegt yfirbragð og er mikil prýði af því. Reynt hefur verið að viðhalda upprunalegum glæsileika eignarinnar.    
 
Á efri hæðum er mikið um skrautalista  í loftum og hurðargrefti eru með fallegu munstri og gefur það húsinu fallegt yfirbragð.
 
Lóðin er baklóð og er hægt að loka henni með  járnhliði.  Sér afnotareitur Laugavegs 31 er við húsið.  Lóðin er hellulögð.
 
FYRSTA HÆÐ
Á götuhæðinni er móttaka fyrir Kristnisjóð. Gólf er lagt með linoleumdúk og veggir eru viðarklæddir að hluta. Einnig er verslun  á götuhæðinni sem er með skrifstofu, lager og
kaffiaðstöðu innaf og þaðan er innangengt  í hluta kjallarans. Góð lofthæð er  á hæðinni og áberandi stórir og bjartir gluggar sem snúa út að Laugavegi og Vatnsstíg. Hæðin gæti nýst vel sem glæsileg verslunarhæð
 
ÖNNUR HÆÐ
Á 2. hæð hússins eru snyrtingar, opin rými, móttaka, bókasafn og  átta skrifstofur og er gólfið lagt með linoleumdúk. Snyrtingarnar eru dúklagðar og eru veggir  á snyrtingunum flísalagðir .
 
ÞRIÐJA HÆÐ
Á 3. hæð hússins eru góðar skrifstofur, fundarherbergi og ljósritunarherbergi. Gólfefni eru ýmist korkur, dúkur eða parket.
 
FJÓRÐA HÆÐ
Á 4. hæð hússins eru snyrtingar, tvö herbergi, eldhús, búr, matsalur og fundarsalur. Gólfið er ýmist lagt linoleumdúk, parketi eða korki. Eldhúsið er með hvítri látlausri innréttingu og er búr innaf eldhúsinu. Matsalurinn er parketlagður. Fundarsalurinn er parketlagður og hjá honum er falleg “kringla” en þaðan er hægt að ganga upp í geymsluloft en einnig er hægt að komast þangað úr stigahúsi. Svalir eru út af einu herbergjanna.
 
KJALLARI
Í kjallara er lofthæðin u.þ.b. 2,4 metrar en þar eru m.a. tæknirými, snyrtingar, geymslur og eldtraustar skjalageymslur. Útgangur er frá kjallaranum út í port bakatil sem er séreign hússins en einnig gengur lyftan niður í kjallarann. Kjallarinn tengist einnig stigahúsi.


Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali 861-8514
Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is

Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8