Lágaleiti 5, 103
Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá
Verð |
49,9
|
Stærð |
46
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
1.085
|
Skráð |
19.4.2024 |
Fjarlægt |
1.5.2024 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
--- Bókaðu skoðun - hægt að sýna með stuttum fyrirvara ---
ELKA lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir mjög góða eins herbergja íbúð á annarri hæð merkt 217 í Lágaleiti 5. Eignin er skráð 46 m² og skiptist í 36,7 m² íbúð á annarri hæð með sólríkar suðursvalir í góðu lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í Rvk. Íbúðin er laus strax.
Íbúðin skiptist í alrými með fallegu eldhúsi, stofu og svefnaðstöðu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í sameign 9,3 m².
Allar nánari upplýsingar hjá Elku fasteignasala í síma 863-8813 // elka@fstorg.isNánari lýsing;Aðgengi að íbúðinni er um fallegan garð og þaðan er gengið inn í snyrtilegt anddyri. Íbúðin er á annarri hæð, lyfta er í húsinu.
Falleg eldhúsinnrétting er í opnu rými studíó íbúðarinnar. Stofan og svefnrými er bjart og hagnýtt með útgengi á sólríkar suðursvalir sem snúa að Útvarpshúsinu í Efstaleiti. Parket á gólfi.
Rúmgott flísalagt baðherbergi með "walk in" sturtu, fallegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Mjög rúmgóð sér geymsla er í kjallara hússins.
Íbúðin er í rótgrónu miðborgarsvæði við Efstaleiti þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni, s.s Kringlan, Borgarleikhúsið, Borgarbókasafnið, Heilsugæslan auk alls konar verslun og þjónustu. Fallegur og skjólsæll garður með reiðhjólaskýlum og leiksvæði. Veitinga- og kaffihúsið Yndisauki er i nokkurra metra fjarlægð frá íbúðinni.
Frábær íbúð fyrir einstakling eða par sem vill vera miðsvæðis í borginni.
Hægt er að kaupa öll húsgögn sem eru íbúðinni skv. samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar hjá Elku fasteignasala í síma 863-8813 // elka@fstorg.is