Flókagata 57, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 45 daga á skrá

Verð 45,4
Stærð 60
Tegund Hæðir
Verð per fm 760
Skráð 7.2.2020
Fjarlægt 23.3.2020
Byggingarár 1950
mbl.is

Bjartur fasteignasala kynnir afar sjarmerandi og fallega þriggja herbergja risíbúð til sölu við Flókagötu 57 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 59,7 fm. að stærð en gólfflötur hennar er 90,1 fm þar sem hluti rýmisins er undir súð.
Baðherbergi og eldhús hafa verið endurnýjuð. Stórar 8,4 fm. sólríkar suðursvalir sem einnig eru opnar til austurs og vesturs.
Sameiginlegur stigainngangur.


Nánari lýsing:
Gangur: parket á gólfi, tengir saman rými íbúðarinnar.
Eldhús: falleg sérsmíðuð innrétting úr hvíttaðri eik ásamt sérsmíðuðum hillum. Innbyggð uppþvottavél. Þrír gluggar til austurs og norður, þar af einn veltigluggi.
Stofa/borðstofa: stór og björt stofa og borðstofa með stórum 8,4 fm. suðursvölum, kvistglugga og veltiglugga. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: rúmgott hjónaherbergi með sérsmíðuðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: innbyggður skápur og geymslurými, parket á gólfi.
Baðherbergi: rúmgott og endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, sérsmíðuð innrétting, baðkar og stór gluggi.

Sér geymsla er undir tröppum upp í íbúðina.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Húsið var allt steinað fyrir ca. 20 árum og skolp endurnýjað og hús drenað, a.m.k. að hluta.
Þak yfirfarið og málað nýlega.
 
Afar falleg og einstaklega vel staðsett íbúð. Stutt í skóla, leikskóla og útivistarsvæði og í göngufæri við miðborgina.
 
Allar frekari upplýsingar veita Sigríður Jónasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma
661-4141 eða í gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10