Dalbraut 18, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá
Verð |
25,0
|
Stærð |
52
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
481
|
Skráð |
9.6.2020 |
Fjarlægt |
25.6.2020 |
Byggingarár |
1987 |
mbl.is |
|
Opið hús: Dalbraut 18, íbúð 205, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11. júní 2020 milli kl. 13:00 og 13:30.
Fasteignasalan Bær kynnir 2ja herb. 52 fm. íbúð á 2. hæð, fyrir 60 ára og eldri, auk rúmgóðrar geymslu í kjallara. Yfirbyggðar svalir með furulektum á gólfi og hitaelementi upphengdu í kverk. Tvær geymslur. Íbúðin er laus við kaupsamning. Innangengt er frá jarðhæð í þjónustusel, þar sem boðið er upp á þjónustu á vegum félags- og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur. Í tengibyggingu á jarðhæð er m.a. hárgreiðslustofa, setustofa, mötuneyti með verönd, vinnustofa o.fl. Fallegur sameiginlegur garður. Frábær staðsetning, þar sem stutt er í Laugardalinn, laugina, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@fasteignasalan.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?
Nánari lýsing: Komið er inn í
gang með fataskáp.
Stofa er opin inn í eldhús og með útgengt á yfirbyggðar svalir.
Eldhús er með hvítum hurðum á innréttingu, Electrolux eldavél og viftu.
Svefnherbergi er með fataskáp. Í
baðherbergi er innrétting, sturtuhorn með sæti, tengi fyrir litla þvottavél, veggdúkur og vinyldúkur á gólfi.
Geymsluherbergi með hillum er í íbúð, sem mögulegt væri að nota sem frístundaherbergi. Rúmgóð
sérgeymsla er einnig í kjallara. Pergo plastparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Innihurðir eru spónlagðir með ljósum spæni. Skápar eru með hvítum hurðum. Sameiginlegt
þvottahús með þvottavél og þurrkara er í kjallara. Lyfta er í húsinu og einnig sameiginlegur húsvörður fyrir Dalbraut 18 og 20. Sameign og lóð er vel viðhaldið.
Annað: Kaupandi greiðir árgjald til Samtaka aldraðra, samkvæmt gjaldskrá. Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra, sem greiðist við kaupsamning. Þjónustuselið í húsinu á og rekur Reykjavíkurborg.
Kvöð: Þær kvaðir eru á íbúðunum að þær verða ekki seldar né afhentar til afnota öðrum en þeim sem orðnir eru 60 ára og eru félagar í Samtökum aldraðra. Þeir félagar sem orðnir eru 67 ára og eldri hafa forgangsrétt. Samtök aldraðra eiga forleigu- og forkaupsrétt að íbúðunum, sbr. eignaheimildir.
Kaupandi þarf að vera félagsmaður í Samtökum aldraðra. Þegar aðili gerist félagsmaður í Samtökum aldraðra skuldbindur hann/hún sig til að hlíta samþykktum Samtakanna, sem er að finna á heimasíðu þeirra
aldradir.is:
Úrdráttur úr 12. gr. samþykkta Samtaka aldraðra, sem kaupandi þarf m.a. að undirgangast: Sá, sem fengið hefur íbúð að tilhlutan félagsins, má ekki selja íbúðina nema stjórnin hafi áður hafnað forkaupsrétti af hálfu félagsins. Áform um sölu á íbúð skal tilkynna skriflega og sannanlega til félagsins. Söluverð íbúðar má aldrei vera hærra en upphaflegt kostnaðarverð hennar, að teknu tilliti til vísitölu byggingarkostnaðar og með hliðsjón af viðskeytingu, lagfæringu og ástands hennar samkvæmt mati matsmanns félagsins eða dómkvadds matsmanns/matsmanna. Stjórn félagsins setur nánari reglur um útreikning kostnaðarverðs íbúðar. Enginn getur eignast íbúð í húsum félagsins nema vera félagsmaður, greiða árgjöld til félagsins og fullnægja að öðru leyti þeim skilyrðum sem sett eru í samþykktum Samtaka aldraðra.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4 - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá, sjá nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.
5. Kaupandi greiðir 1% gjald ofan á kaupverð íbúðar til Samtaka aldraðra.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.