Breiðamörk 301, 810

Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá

Verð 33,5
Stærð 79
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 423
Skráð 16.12.2019
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 2007
mbl.is

Byr fasteignasala hefur fengið í einkasölu íbúð við Breiðamörk 25a. Um er að ræða tveggja  herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi, með góðu útsýni.
Töluvert endurnýjuð eign sem er 78,1 fm, þar af 6,3 fm geymsla á jarðhæð, samkv Þjóðskrá Íslands. 14,4 fm suðvestur svalir.

Nánari lýsing
Gengið er inn í parketlagða forstofu
Baðherbergi með flísalagri sturtu, upphengdu wc og hvítri HTH innréttingu.
Þvottahús með nýrri HTH innréttingu. 
Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp.
Eldhús með viðarlitaðri eldhúsinnréttingu. Ný eldunartæki ásamt nýrri uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í sama rými, útgengt út á 14,4 fm suðvestursvalir.

Gólfefni: Flísar á baðherbergi og þvottahúsi en nýtt parket á öðrum rýmum.
Sér geymsla er á fyrstu hæð hússins, hún er skráð 6,3 fm. Epoxý á gólfi geymslu og hjóla/vagnarými.

Eignin er töluvert endurnýjuð. Má þar meðal annars nefna:
Eldhús: Ný borðplata, vaskur og blöndunartæki, nýr ofn, helluborð og uppþvottavél. 
Baðherbergi endurnýjað í hólf og gólf. Öll tæki af vandaðri gerð ásamt nýrri HTH innréttingu.


Nánar um húsið sjálft:
Húsið er staðsteypt og á 3 hæðum. Útveggir 1. hæðar eru einangraðir að utanverðu, múrhúðaðir og steinaðir en útveggir efri hæða eru einangraðir í grind og klæddir með bárustáli, alusinkhúðað. Þak er lagt tjörupappa að utanverðu. Þaksperrur eru úr timbri og aðalburðarbitar úr stáli. Þakkantar eru klæddir sléttum álplötum. Loftútsog er frá lokuðum innrýmum.  Ný lyfta er í húsinu. Sér geymslur eru á jarðhæð.
 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteign.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og framkvæmdastjóri. s. 859 5885 – elin@byrfasteign.is
Gunnar Biering, sölufulltrúi. s. 823 3300 - gunnar@byrfasteign.is

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv verðskrá og kemur fram á kauptilboði. 

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Skipholt 5, 105 Reykjavík | Byr fasteignasala

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9