Vinastræti 6, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 17 daga á skrá
Verð |
77,9
|
Stærð |
100
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
777
|
Skráð |
23.1.2023 |
Fjarlægt |
10.2.2023 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
Einstaklega falleg þriggja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi við Vinastræti 6 í Garðabæ. Eignin er skráð 100,2 fm (Íbúð 89,5 fm, geymsla 10,7 fm) og skiptist í bjart alrými, 2 svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús ásamt geymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmangsbíla.Nánari lýsing:Anddyri: Með góðum loftháum og hvítlökkuðum skáp frá GKS.
Þvottaherbergi: Er inn af forstofu. .
Stofa / Borðstofa: Opin og björt með útgengi á Norðursvalir.
Eldhús: Með fallegri hvítri innréttingu frá GKS með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og blástursofni, helluborð frá Electrolux.
Baðherbergi: Vönduð innrétting frá GKS með veggskáp með stórum speglahurðum og skáp með vaski. Upphengt salerni og gólfsturta með glerskilrúmi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með skáparými inn af herbergi. Mjög gott skápapláss
Svefnherbergi: Rúmgott með loftháum og hvítlökkuðum skáp frá GKS.
Bílastæði: Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Hægt er að fara með lyftu í stigahúsi niður í bílageymslu. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmangsbíla.
Gólfefni: Vandað harðparket á öllum gólfum utan baðherbergis og þvottaherbergis en þar eru flísar.
Sameign: Stigahús er hvítmálað og teppalagt með lyftu. Dyrasími með myndavél. Rafmagnsopnun í hurðum í anddyri.
Hjólageymsla er í sameign. Innangengt er í sameign aftan frá húsi.
Sérgeymsla í sameign 10,7 fm.
Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem byggt var 2019 af ÞG VERK. Húsið er vel staðsett ofarlega í Urriðarholtinu í grend við Urriðaholtsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Verslun og þjónusta, gofvöllur, útivistarsvæði í Heiðmörk og Vífilstaðavatn er í næsta nágranni. Einnig er í hverfinu veitinga– og kaffihús. Örstutt er niður á Reykjanesbraut og þar með umferðaræðar höfuðborgarsvæðisinsNánari upplýsingar veitir:
Úlfar Hrafn Pálsson löggiltur fasteignasali s.623-8747 eða ulfar@remax.is