Grettisgata 22, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá
Verð |
79,9
|
Stærð |
134
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
598
|
Skráð |
1.12.2017 |
Fjarlægt |
12.12.2017 |
Byggingarár |
1908 |
mbl.is |
|
LIND Fasteignasala kynnir: Fallegt einbýlishús í hjarta borgarinnar með sannkölluðum sælureit í bakgarði.
Birt stærð skv. Þjóðskrá eru 133,6 fm sem skiptast í kjallara 49,5 fm, hæð 52,8 fm og ris 31,3 fm. Fasteignamat 2018 kr.57.250.000.-
Lýsing eignar:
Miðhæð: Gengið inn í
forstofu á miðhæð. Þar er
eldhús með stórum frönskum hurðum sem opnast útí garð, b
orðstofa og
stofa. Gegnheilt viðarparket bæði í eldhúsi og stofu. Gaggenau gaseldavél og eins árs gömul AEG Innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi með sturtu.
Ris hæð: 3 svefnherbergi ásamt geymslu og fatageymslurými. Upprunalegar viðarfjalir á gólfi. Kókosteppi á stiga. Gólfflötur er stærri en birtir fermetrar segja til um.
Kjallari: Í kjallara er gert ráð fyrir stóru
svefnherbergi en búið að breyta í stórt
sjónvarpsherbergi – vel hægt að breyta aftur í svefnherbergi. Opið rými sem er nýtt sem
skrifstofa og
baðherbergi með hlaðinni /steyptri sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gengt er í
geymslu út frá salerni. Útgengt í garð líka í kjallara. Vel hægt að útbúa auka íbúð í kjallara með sérinngangi. Náttúrsteinn á gólfi kjallarans en kókosteppi á stiga.
Bakgarður er pallalagður og mjög vel gróinn. Geymsluskúr við vesturgafl.
Búið að samþykkja teikningar að nýjum kvisti á 3 hæð sem stækkar rýmið um 10-20 fm. Einnig búið að samþykkja stækkun miðhæðar út í garð og einnig búið að samþykkja teikningar að svölum á 3 hæð. Þyrfti þó að sækja um aftur en fordæmi fyrir öllu ofangreindu í götunni.
Endurbætur síðustu ára:
*Nýtt gólfefni í stofu og eldhúsi lagt 2017 – gegnheilt viðarparket.
*Eldhús tekið í gegn 2016 – innrétting máluð, skipt um borðplötu og höldur. Efri skápar teknir niður og settar fallegar hillur í staðinn.
*Baðberbergi á miðhæð – skipt um handlaug, spegil og innréttingu árið 2015.
*Skipulagi breytt á efstu hæð. Upprunalegar fjalir pússaðar upp og lagðar bætur þar sem þurfti. Búið til nýtt herbergi, gólflistar lagaðir og lagðir nýjir.
*Rafmagn yfirfarið í öllu húsinu og dregið nýtt þar sem þurfti árið 2015.
*Báðir stigar teppalagðir með kókosteppi árið 2017.
*Skipt um þakrennur sumarið 2017
*Hús málað að utan 2016. Járnið yfirfarið, lagað og grunnað. Járn í góðu standi
*Allir gluggar heilir.
*Tveir nýjir ofnar settir í kjallara 2016.
*Innihurðir flestar pússaðar og málaðar 2015.
*Múrviðgerðir á húsinu að utan árið 2015.
*Þak nýmálað og grunnað.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Jarl í síma 892-9966 eða stefan@fastlind
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (1,6% fyrir lögaðila) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboði.